23.2.2007 | 19:16
Frjálsir framsóknar feministar
Ég er að fara til London næstu helgi, vona að ég fái gistingu á hótelinu þó einn úr hópnum sé veiðimaður og íslendingar veiði hvali. Vona að mér verði ekki úthýst þó bretar séu á móti hvalveiðum.
Ísland er hálfgert fasistaríki. Nike ætlar að senda fólk hingað í óvissuferð í vor, ætli ríkisstjórnin banni það, því Nike er með barnaþrælkun. Ríkisstjórnin ætti í það minsta að kanna það.
Afhverju eru íslensk stjórnvöld svona hrædd við túristana sem ætluðu að koma hingað og eiga það sameiginlegt að starfa við klámiðnaðinn, hann er að mörgu leiti viðurkenndur í okkar þjóðfélagi. Margar verslanir selja klámmyndir. Væri ekki nær hjá svona siðprúðu fólki að eyða frekar púðri sínu í að upplýsa fólkið sem kaupir klám? Ég spurði frjálslyndan sjálfstæðismann, hvort ríkisstjórnin væri brennd eftir hálf misheppnaða ríkisframleidda klámmynd úr Byrginu. Hann vildi meina ekki. Þetta væru mest femenistabeljur að rífa kjaft. Feministi sem slíkur, skilar ekki hagvesti, það gerir klámið. Allir sáttir.
Hótelstjórinn á hótel sögu segist hafi neitað klámhóppnum inngöngu vegna þrýsting frá stjórnvöldum. Nú verð ég að spyrja stjórnvöld hvort þessi andlega sjálfsfróunar hreinsun hafi tekist vel?
Svo sá ég að Bjarni Harðar er svag fyrir klámi og vill ekki að framsóknarþingmenn verði á hótel sögu um svipað leiti og fólkið úr klámiðnaðinum átti að vera þar. Já ef maður er svag fyrir einhverju er gott að þekkja sín takmörk og halda sig sem lengst frá því forboðna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.