12.9.2007 | 20:36
margt að koma
Ætli Adolf Inga ( sem lýsti leiknum á rúv ) finnist Eiður Smári lang besti knattspyrnumaður sögunnar? Hann er besti knattspyrnumaður sem ísland hefur alið, en svona ummæli gera í besta falli Eið tortryggilegann
"núna hlýtur landsliðsþjálfari norður-Íra að vera hugsa, hvað ef þeir setja Eið inná....minnugur þess hvernig hann fór með þá á Írlandi?"
"nú er þjálfari norður-Íra að spá í hvernig hann getur brugðist við inná skiptingu Eiðs "
Adolf.....þeir hafa allir mætt betri leikmönnum en Eið, þó svo að Eiður sé okkar besti maður.
Ég er nokkuð viss um að sjónvarps-upptökumenninir hafi laumað sér inn í vip-herbergið hjá KSI og fengið sér smá freyðivín og jafnvel fengið að horfa á Henry Birgir borða rækjusamlokur. Þetta var allavega ekki besti dagur þeirra.
Ég er líka nokkuð viss um að Grétar Rafn fær að hlaupa heim, hann virðist hafa ofsalega gaman af því, bara ef allir leikmenn okkar væru svona duglegir.
Annars góður sigur hjá okkur og allir að standa sig vel.
![]() |
Ísland sigraði Norður-Írland 2:1 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hafðu ekki áhyggjur af Adolf Inga. Hann er nú bara að lýsa fótboltaleik.
Þar þarf ekkert sérstakar mannvitsbrekkur.
Annað er að segja um aðstoðamann samgönguráherra. Þar virðist allt vera marflatt, enda maðurinn frá Sursteyjum. Jafnvel Selfyssingurinn gerði betur, trúi ég. jamm.
HP Foss, 12.9.2007 kl. 23:36
Við hverju býst fólk við frá manni sem keyrir um á Jagúar.
Björn Heiðdal, 15.9.2007 kl. 07:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.