23.10.2007 | 00:27
Airwaves
Kíkti í bæinn um helgina og fór að sjá Airwaves. Eftir mikið lof frá kollegum mínum meðal annara gagnrýnanda, lét ég tilneyðast og dustaði rykið af blaðamannapassanum og fór á tónleika. Ekki var ég nú svikinn í þetta sinn. Þetta er eitt magnaðasta band sem ég hef heyrt í og á virkilega skilið þá athyggli sem það fær. Samvinna og vitund fyrir hvor öðrum var eins og best verður á kosið hjá bassaleikara og trommara. Fingrasettning gítarleikarans var til fyrirmyndar og söngvarinn með óheflaðri framkomu sinni, minti um margt á söngvara Rolling Stones. Hljóðblöndun og ljósashow var uppá tíu. Mér skildist á öðrum tónleikagestum að Airwaves hafi komið hér nokkrum sinnum áður og ætluðu að koma að ári, vill ég því hvetja aðra fagurgala landsins til að fjölmenna og sjá hljómsveitina Airwaves að ári. Látum ekki kreddur um lélegan tónlistarsmekk unga fólksins eyðileggja fyrir okkur í ´68 kynnslóðinni að fá að njóta þess nýjasta og ferskasta sem tónlistarheimurinn býður uppá. Komum öll að ári og sýnum unga fólkinu hvað er að vera hipp og cool.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Menning og listir, Tónlist | Facebook
Athugasemdir
Tommi þú talar um "blaðamannapassa" hvaða blaðamannapassa, þykistu síðan líka vera af hinni "frægu"68 kynslóð. Aftur á móti er þetta þrælgott hjá þér "gamlingjanum" að skreppa og upplifa ungdómsfílinginn svona upp á fyrri tíma. Næst máttu alveg taka mig með.
Eiríkur Harðarson, 23.10.2007 kl. 13:19
Airwaves eru góðir.
GK, 24.10.2007 kl. 18:12
Tek undir með GK, Airwaves eru laaaaaang bestir, híhí. Tommi, þú ert snillingur og átt að blogga oftar.
Ibba Sig., 24.10.2007 kl. 22:11
Sæll kæri vinur,
Þú átt alveg þín augnablik. Þetta er eitt af þeim.
Kveðja,
Rúnarsdóttir, 25.10.2007 kl. 16:11
Já, ég hef heyrt að það hafi verið gerður góður rómur að flutningi þeirra. Þarf að kíkja á slíkan viðburð við tækifæri...
Heimir Tómasson, 30.10.2007 kl. 19:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.