23.2.2007 | 19:16
Frjálsir framsóknar feministar
Ísland er hálfgert fasistaríki. Nike ætlar að senda fólk hingað í óvissuferð í vor, ætli ríkisstjórnin banni það, því Nike er með barnaþrælkun. Ríkisstjórnin ætti í það minsta að kanna það.
Afhverju eru íslensk stjórnvöld svona hrædd við túristana sem ætluðu að koma hingað og eiga það sameiginlegt að starfa við klámiðnaðinn, hann er að mörgu leiti viðurkenndur í okkar þjóðfélagi. Margar verslanir selja klámmyndir. Væri ekki nær hjá svona siðprúðu fólki að eyða frekar púðri sínu í að upplýsa fólkið sem kaupir klám? Ég spurði frjálslyndan sjálfstæðismann, hvort ríkisstjórnin væri brennd eftir hálf misheppnaða ríkisframleidda klámmynd úr Byrginu. Hann vildi meina ekki. Þetta væru mest femenistabeljur að rífa kjaft. Feministi sem slíkur, skilar ekki hagvesti, það gerir klámið. Allir sáttir.
Hótelstjórinn á hótel sögu segist hafi neitað klámhóppnum inngöngu vegna þrýsting frá stjórnvöldum. Nú verð ég að spyrja stjórnvöld hvort þessi andlega sjálfsfróunar hreinsun hafi tekist vel?
Svo sá ég að Bjarni Harðar er svag fyrir klámi og vill ekki að framsóknarþingmenn verði á hótel sögu um svipað leiti og fólkið úr klámiðnaðinum átti að vera þar. Já ef maður er svag fyrir einhverju er gott að þekkja sín takmörk og halda sig sem lengst frá því forboðna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2007 | 08:35
Ráðlagður dagsskammtur af Sirrý
Skrítið að fólk þurfi alltaf að vera að miða þyngd fyrirbura við smjörstykki. Vá fæddist hún bara rúmar 4 merkur 1060 gr, það er bara eins og tvö smjörstykki. Það er eitthvað við þetta sem mér finnst ekki passa.
Sirrý fór reyndar alla leið með þetta í morgunþættinum. Gissur fréttamaður sagði að í bandaríkjunum hefði fæðst barn sem væri 284 gr og svo voru þau að velta fyrir sér hvað það væru margar merkur, þá skítur Sirrý inní að ráðlagður fiskskammtur á dag væri 250-300 gr, þannig að við getum séð hvað barnið er lítið. Sirrý klikkar ekki.Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.2.2007 | 08:24
Ég kann ekkert bítlalag !!
Skil ekki afhverju Liverpool sektaði Bellamy. Held að þetta sé eina leiðin fyrir þá til að verða meistarar, að Bellamy fái að ganga á milli þeirra sem ekki kunna fotbolta og berja undan þeim fætunar.
En að öllu gamni slepptu, afhverju er maður ekkert hissa að laglaus, rauðhærður norsari sem heldur að hann sé fínn í fótbolta, sé lamin af breta á spáni.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2007 | 20:17
Byrja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.2.2007 | 17:35
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Breytt 22.2.2007 kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)