Færsluflokkur: Bloggar
5.4.2007 | 02:11
persónulegtblogg
Jæja þá er þessi dagur að verða búinn, var aðeins sérstakur dagur. Kennari sem kenndi mér fyrir rúmum 20 árum sagði að hann hefði gaman af að lesa bloggið mitt. Finnst vænt um það. Annars var ótrúlega mikið að gera hjá mér í vinnunni í dag 16 tíma vinnudagur.
Fór m.a. tvisvar í Byko á Selfossi og í seinna skiptið var ég tekinn fyrir að hnupla. Jamm en þetta er í fyrsta sinn.......fyrsta sinn sem ég er tekinn allavega, kannski hef ég stolið áður, veit ekki alveg. Ég fór inní búðina heilsaði stelpunum sem voru í saklausri fjáröflun að selja kökur og blóm, rauðhettur kapitalisma. Arkaði næst að spengilegum sölumanni, tók blað úr vasanum og las "ryksugupoka" sölumaðurinn sneri sér við og let mig fá kippu af pokum, ég þakkaði honum mikið vel fyrir og gekk út. Hva...bara búnar að selja allar kökunar? sagði ég við fjáröflunarstelpunar. Hva....á ekki að borga fyrir pokana sagði dimm rödd fyrir aftan mig. Þar var kominn sölumaðurinn. Jú ég taldi það rétt og borgaði. Ég virði það við staffið í Bykó þó það vilji vakta mig, næst þegar ég kem. Fór að spá í hvort það væri ekki hægt að vera með steluþjófadag, þá mætti stela smá og það væri viðurkennt þennan dag. Pælið hvað þeir litu illa út sem yrðu uppvísir að stuld einhvern anan dag, það væru lúðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.4.2007 | 00:24
Skipholt
Gekk að mér maður í Skipholti í dag og við áttum sérstakar samræður.
Ég : Góðan dag
Maður: Helvíti fór hann illa með mig, hann tók mig alveg......let mig fá smá fyrst, en svo var eins og hann væri alveg frosinn.
Ég: Já.........
Maður: Já hann var alveg frosinn, það var alveg sama hvað ég reyndi. Skrítið þegar þeir láta svona þessir kassar.
Ég: Já það borgar sig ekki að treysta á þá.
Maður: Já ótrúlegt hvernig þeir láta stundum þessir kassar......hann tók af mér 17.000.....ha hvað geri ég nú?
Ég setti dóttur mína inní bíl og þagði, hann sá örugglega að ég ætti ekki svör við öllu og kvaddi mig með "takk vinur" ég svaraði gangi þér vel, hann tók undir með "takk vinur"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.4.2007 | 21:34
Færeyjar
Mikið ofboðslega er nú færeyska fallegt tungumál, hún er glettilega lík íslenskunni en er með eitthvað óútskýranlegt hljómfall sem íslenskan hefur ekki. Ég heyrði fjölskyldu Jógvan tala og þau töluðu öll eins og Rúnar Júl, fegurð, dýft og mýkt umfram reglur.
Tökum dæmi sem við höfum öll margoft velt fyrir okkur. Afhverju er aldrei, ekki skrifað aldrey og borið þannig fram ? Aldrey gæti verið hið fullkomna orð, ótrúleg dýft og lætur merkinguna standa og falla eins og ybsilon.
Nú skora ég á ykkur öll, góðir íslendingar bætum málið okkar! Gerum íslensku að fallegasta tungumáli heims.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.4.2007 | 23:39
Já hver gerði það!!!
Er nema von að löggan spyrji, þetta er eitthvað svo myndrænt.
Svo ætlast þetta fólk til að fá göng til eyja, hvernig haldið þið að verði fyrir fólk í austur-Landeyjum að fá eyjamennina yfir um hverja helgi ofurölfi með skrílslæti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
2.4.2007 | 07:43
Davíð, drag og Geir Jón.
Jæja þá er maður komin frá Canela á spáni og nú er ég að reyna lesa mig í gegnum fréttir síðustu daga. Skilst að Davið hafi ráðið þessu með álverið, finnst það cool hjá honum.
Hreppsnefnd Hveragerðishrepps ályktaði að dragdrottningarnar í dúettnum Hara væru hipp og cool, þið sjáið fréttina hér.
Vonandi sér Selfoss-stuðboltinn Einar Bárðar sóma sinn í að vísa þessum systrum frá keppni.
Annars var ég ekki stoppaður í tollinum, sá gaur með kassagítar og notaði hann sem tálbeitu. Fór þá að hugsa um hvort betra væri að vera Geir Jón löggustjóri eða Geir og Jón flokkstjórar, við því er ekkert svar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.3.2007 | 13:27
Marca
Ja tad var gaman ad setjast nidur i morgun med late-bollann og lesa spaensku blodin. Tau eru oll uppfull af Baugsmalinu og gaman er ad sja tann misjafna politiska vinkil sem tau sja a malinu. Haegri ofgabladid Marca er samt vid sig og birtir opnuvidtal vid Sigurd Tomas Magnusson og fer Sigurdur vel ut ur vidtalinu. Vandadur madur tar a ferd.
![]() |
Segir ásetning um bókhaldsbrot fullsannaðan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.3.2007 | 23:37
poker, cut og x
pokerface er ekki til.....ef menn hafa bara einn svip eru teir med pokerface.
Vonlausi spaenski galdrakallinn var ad reyna ad galdra fyrir eldri-borgara-tjodverja-med 150+-i-greindarvisitolu, tad var vonlaust , hann var med Presley eftirhermu fotahreifingar, sem var vonlaust eins og hljomsveitinn sem spiladi sombody talk to my og hello med Liony Ritchy i kvold. Su hljomsveit var boring og verri en Viddi i greifunum sem er boring( sorry ef eg virka sem kvennremba) en Viddi er boring.
Til forradamanna: Simmi veit ekki afhverju........ en hann er til i ad berja Andy.......tad er i lagi tvi Andy er utlendingur.....ju hann er tad....i alvoru....og tess vegna ma berja hann....og nu tala eg fyrir hond allra sem eg hef sed og eru i minu lidi. Einar Otto og Harti vita nuna afhverju teir eru braedur. Mamma eg verd hissa ef eg verd ekki helcutadur adur en ferdin er uti.........
Samt afhverju heilsadi hljomsveitinn Omari med virtum, tegar hann gekk i salinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.3.2007 | 16:36
leikur
Gott af fretta af spani. Sktitid med strakana herna, teir fara ad safna yfirvaraskeggi 16 ara, en stelpunar ekki fyrr en um 20 ara aldur. Gott vedur i dag, sma trumur og eldingar.
A hotelinu okkar eru bara frekir tyskir eldriborgarar, (sumir) strakanir bunir ad vera kvarta yfir tvi ad sja engar saetar stelpur her, i morgun var feita bykkjan i sjoppuni bara med falleg augu.
Til forradamanna: Simmi setti upp pokerface aldarinar "hva...eg fekk konuspil....humm her er kall med koronu....er tad gott?" tok svo stora pottinn.
Vid topudum fyrir Leikni adan.......er eitthvad i tessum heimi verra? Leiknir er vonlaus klubbur og eg verd lamin ef einhver teirra ser mig blogga tetta, svoleidis eru teir.... teir eru her um allt eins og mosskitoflugur. Saevar og Vidar skorudu, Einar Otto og Saevar (med klobba logdu upp) humm tegar eg skrifa tetta virkar tad kripi.....en skilja teir sem skilja. Annars vorum vid betri....... ja tetta er lomud afsokun, eg veit. attum 3 stangarskot
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.3.2007 | 11:54
Hitinn
Her er gedveikt vedur, eg elska ad lata solina leika um staeltan likama minn. Eg finn mig best i hita. Ad leggjast a heitann solbekk er frabaert. Ad setjast a heita klosetsetu er vidbjodur, hvada lodnu laeri voru her sidast ? Lenti i tvi adan, var ad na i einn ur hopnum til portugals og beid a flugvellinum. Turfti svo ad fara a klosetid, eg hafdi um 15 klosett ad velja, valdi klosetid fra sveitta, feita gaurnum sem eg maetti a leidinni ut. Hann slefadi sma, en eg er ekki ad kvarta yfir tvi.
Til forradamanna: Gott af ollum her a spani, Einar Otto labbadi ovart ofani gosbrunn i lobby-inu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)