Færsluflokkur: Bloggar

Agnes rassskellir sig

 

Algjört snildar vídeó hjá Agnesi !!! Gaman ef íhaldið ætlar að taka þetta á húmornum.

Takið eftir í byrjun "Geir Hilmar Haarde" 

og svo Geir Hilmar Haarde telur það sísta kostinn og þann allra verst að hafa Samfó og VG saman ( Vá hvað þetta er sjálfhvert, hverjum datt eitthvað annað í hug. insk.bla) 

Svo er algjör snild í restina, þegar hún rennir augunum af myndavélinni, sem hún reyndar var búin að vera í vandræðum með. Hún gæti verið kona mr. Bean 


mbl.is Geir H. Haarde telur samstarf Samfylkingar og VG versta kostinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

nei...ég vissi það ekki

 

Fara menn bara aftur í skápinn...humm...djöfull yrði maður hissa ef Páll Óskar færi aftur í skápinn og já sumir enn meira hissa. 


mbl.is Filippseyskir lögreglumenn varaðir við að dilla mjöðmum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villandi

 

Mikið hefur borið á því að fólk rugli saman okkur nöfnunum og harma ég það, sérstaklega í ljósi þessara fréttar sem hér birtist. Fjöldi íslenskra og erlendra kunningja minna hafa haft samband við mig og virðist þetta vera orðið nokkuð útbreyddur misskilningur í hinum vestræna heimi. Nú vona ég að þið standið með mér, vinir og vandamenn segið nú öllum sem vilja og ekki vilja heyra það. Ég hef ekki og mun aldrei vera með þessari Pamelu !!!. Fyrir mig..... láttu vita... með fyrirfram þökk, Tommi.


mbl.is Tommy tottar tær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ofl ofl

 

Það er búið að vera mjög mikið að gera hjá mér í þessari viku, er að reyna vinna af mér, því ég er að fara á spán á morgun. Verð samt að vera duglegur að blogga þaðan.

Þarf líka að fara gera fleirri tilraunir, ef þið eruð með einhverjar hugmyndir, þú er ég til. Ég fjármagna og sé um alla verkstjórn.

Eins ef það er eitthvað í hinum stóra heimi sem þið ekki skiljið, eitthvað sem er í móðu fyrir ykkur þá endilega sendið mér línur og ég mun bregðast skjótt við. 

Skrítið hvernig hann er alltaf.


mbl.is Yfirlýsing frá Davíð Oddssyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjarðeðlið

 

Það er með ólíkindum hvað hjarðeðlið er ríkt í sjálfstæðismönnum. Þetta er áberandi í Framtíðarlandinu þar sem engin þingmaður Sjálfstæðisflokksins þorir að stíga fram og skrifa undir. Er það virkilega svo að allir séu þeir með sömu skoðun ? Mikið hlýtur uppeldið að hafa tekist vel hjá Hannesi Hólmsteini.

Ætli þeir hafi rætt málin, eða þarf bara ekki að tala um sumt.


Mynd

Í eyjum

Ertu að vinna frú Harðardóttir?

 

Helga Sigrún Harðardóttir beitir nýstárlegum aðferðum við að ná í atkvæði á bloggi  sínu og má búast við háu skori eftir þessa rimmu sem hún átti við kjósendur. Já sú kann að snúa kjósendur niður, nú er bara að draga þá á hárinu á kjörstað þann 12.05 og setja x við b=berja til hlýðni. 

Er nema von að Helga Sigrún Harðardóttir haldi að þetta sé það sem fólk vilji. Framsóknarflokkurinn fær alltaf að stjórna þrátt fyrir að vera kúgari. 

Ég verð að fá að spyrja þig í lokin, eins og þú spurðir hana Heiðu "Ertu ekki annars að vinna?"


Vitinn 26. TBL

 

Jæja þá er uppáhalds blaðið mitt komið út. Þetta er Vitinn sem gefin er út annan hvern miðvikudag í skaftafellssýslu og mun ég halda áfram að dreifa honum ókeypis hér. Jamm það borgar sig að kíkja á tommi.blog.is.

Ég vill sérstaklega vekja athyggli á auglýsingu á bls 4 frá Halldórskaffi. Þar er auglýst eftir staffi og er nálgunin sérstaklega næm hjá nýju rekstraraðilanum. Svo er sniðugt að láta bara Ester svara símtölunum. Hvað ætli margir sæki um? hundrað manns ? 

Ég mæli sérstaklega með þessum lestri fyrir svefnin, því tilhugsuninn að sofna við þá hugsun.............hvað Jón Steinar sé?......... er óbærileg.  


Í hljóði héf ég öskrað mig hásan.

Pabbi minn var spurður að því þegar hann var 5 ára, hvort hann kynni orðið að lesa. Pabbi þurfti að hugsa sig aðeins um en svaraði svo “ nei.... en ég kann að skammast mín !!

Sú aðför sem fyrir nokkrum árum var gerð að Þórólfi Árnasyni og varð til þess að hann þurfti að segja af sér er hreint með ólíkindum, sérstaklega í ljósi nýfallins dóms yfir Kristni Björs og co. Allt þetta mál er sjálfstæðisflokknum til vansa. Sjálfstæðismenn með sitt illa innræti náðu að hrekja þennan vandaða mann á brott og er aðförin nú gegn Ingibjörgu Sólrúnu farin að minna á borgarstjóramálið þeirra.

Kristinn Björnsson sagði í kastljósinu í kvöld að þetta mál væri eins og “fjarlæg skáldsaga” Þetta er rétt. Reynið að ímynda ykkur land þar sem forstjóri væri ákærður fyrir svik. Konan hans væri dómsmálaráðherra og hann þar af leiðandi sýknaður. En vinnumaður forstjórans sem er á öndverðu meið í stjórnmálum, var látinn gjalda. Afsakið.... en ég þarf að öskra í hljóði. 

Þið sjálfstæðismenn sem kunnið að lesa ættuð að læra að skammast ykkar.

 


Áttu börn, Björn ?

 

Sumt breytist ekki neitt. Þrátt fyrir endalausa höfnun, skín hroki og yfirlæti úr hverju orði hérna. Björn er alveg hissa á að það sé skorað á hann að skrifa undir í "áskorunarherferð Framtíðarlandsins" .

Björn veit ekki hvernig að þessari söfnun er staðið.
Hann veit að hann hefur fengið yfir 40 tilmæli um að skrifa undir. Hann veit að ef hann yrði við þeim öllum, yrði talið að yfir 40 áskoranir hefðu borist. Þetta finnst Birni ekki vekja traust á framkvæmdinni.

En bíðum við.....Björn sagðist ekki vita hvernig að þessu væri staðið.......en ekki er hún traust, hann veit það. Er það tilgangurinn sem helgar meðalið? Ef 40 manns skora á mig að fara í sund á morgun og mér hugnast það, fer ég samt bara einu sinni. 

Svo duttu inn 10 áskoranir á meðan hann skrifaði færsluna og honum blöskraði mengunin sem talvan hans varð fyrir!!!  

En Björn, ég veit að það eru ekki vinir þínir í Sjálfstæðisflokknum sem eru að skora á þig. Getur verið að þetta séu ættingjar þínir af yngri kynslóðinni? Þeim þykir allavega vænt um þig, sem senda á þig. Því get ég lofað.

Skora á alla að lesa BB 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband