Færsluflokkur: Bloggar

Innspýting í menntakerfið.

Virkilega athygglisverðar hugmyndir hjá Björgvini G og hér er hægt að sjá líflega umræðu um málið.

Að 30 % af láninu breytist í styrk og afnumin verði krafa um ábyrgðarmenn. Þetta er maður að mínu skapi.


Reykjanes

Suðurnesjamenn er skemmtilegir, þeir eru öðruvísi en aðrir íslendingar. Nota mikið slangur, en annars dagfarsprúðir. Mér finnst þeim bést lýst þegar ég var þar staddur fyrir síðustu kosningar. Þar voru framsóknarmenn búnir að setja X Bus á kosningaskrifstofuna hjá sér, Guðni Ágústson veit ekki hvað bus þýðir. En framsóknarmenn í Reykjanesbæ voru tilbúnir að gefa íslenskunni frí fyrir töffið.

  

Þetta segir okkur reyndar líka hvað kjördæmin eru alltof stór. Hvernig eiga Guðni og Bjarni að geta talað við vennjulegt fólk í Reykjanesbæ?

 

Talandi um Reykjanesbæ, þá er ég hræddur um að nýja hverfið þeirra við brautina sé hálfgert klúður, héld þetta séu alltof margar lóðir sem var úthlutað þar í einu. Það þýðir að hverfið verður alltof lengi að byggjast upp og ekki gaman að vera með fyrstu íbúum þar. Eftir fimm og jafnvel tíu ár verða ennþá framkvæmdir þar með öllu því raski sem þeim fylgja.   


Nú geta allir kosið

Ég krefst þess að hægri grænir ( Magga og Ómar ) fá listabókstafinn M, þá ætla ég að fara með Guðmundi í Byrginu á kjörstað og sjá svipinn á honum þegar hann þarf að velja á milli B,D,S og M. 

Annars er ég búinn að setja upp könnun vinstra megin á síðunni. Þessi könnun er að flestum talin sú vísindalegasta. Ég sleppti Frjálslyndum, þeirra atkvæði verða reiknuð inní eftir á og svo setti ég smá orðaleik við Framsókn, því það jafngildir röskununni á heilastarfsemi ykkar sem þið verðið fyrir við að sjá Jón sáluga Sigurðsson daginn fyrir kosningar. 

Að lokum legg ég til að öll ummerki Framsóknar verði afmáð úr samfélagi þjóðann. 


Bjarni til í hvað sem er

Skil ekki hvernig er hægt að vera svag fyrir klámi og vinstri grænum í sama mánuði.  En Bjarni Harðar klámprins framsóknar sagði fyrr í þessum mánuði vera svag fyrir klámi. Í kvöld var hann að daðra við vinstri græna í kastljósi  "margt líkt með þessum flokkum og þeir eiga samleið" sagði Bjarni um vinstri græna og vill samband. Hann bað þjóðina einnig um að virða það við framsókn að hafa beðist afsökunar og að lokum kvartaði Bjarni yfir sambúð með íhaldinu.

Bjarni, þegar maður er hjá hjónabandsráðgjafa er ekki sniðugt að tala um næsta maka......held ég. 


Blogg-vinur

Áðan lenti ég í mjög skrítnu atrið, sem á sennilega eftir að fylgja mér alla ævi. Ég var að ganga Hallveigarstíginn og á horninu Hallveigarstíg og Bergstaðarstræti mæti ég blogg vini mínum. Strákur sem ég hef aldrei séð og það sást á mér. Ég gjörsamlega panikaði og þegar ég panika þá hreifist neðri vörin upp og niður og höfuðið á mér tekur snöggar hreifingar til hægri, ekki ósvipað hræddri hænu. En blogg-vinur minn horfði beint í augun á mér, þannig að ég greip utan um hann og sagði eitthvað. Hann sagði á móti "ha er ég góður strákur ?" "Já Gunni þú ert svo góður strákur" Svo losaði ég takið og beygði fyrir hornið. Það sem situr eftir er hvað hann er visinn. En rosalega góður strákur. 


Fáranleiki tilverunar

Ég var á fundi í gærkvöldi og hitti þar m.a. stelpu, hún kom til mín áður en fundurinn byrjaði og þurfti mikið að tala við mig. Þetta er rólyndisstelpa ca 30 ára, með brosandi augu og með mikla réttlætiskennd, hún er yfirlýstur feminismi og hefur örugglega alltaf kosið flokka til vinstri. 

Eg spurði hana með minni djúpu hljómfögru rödd, hvað henni lægi á hjarta? Þú breyttist andlitfall hennar og hún eins og andsetin af Ingva Hrafn sagði "helv... kerlingin búin að kljúfa flokkinn í herðar niður........ " svo sagði hún eitthvað meira sem ég gat ei greint sökum hræðslu.

Ég náði þó allan tíman að halda ró minni, en missti af því hvað hún sagði. Því spyr ég, hvað hefur Ingibjörg gert fyrir utan að vera stundum með þessa Sir lanka eyrnalokka og borða börn? 


Aðeins að tóna það

 

Cool hjá Eiríki Hauks að tóna rauða hárið og greinilegt að Ásgeir Kolbeins er að ráða mönnum heilt. Það segir sig sjálft stelpur, maður vinnur ekki eurovision með karrýrautt hár.

Vegna þess mun ég opna málverkasýningu mína föstudaginn langa kl 12.00. Já handtakið þið mig bara og brennið málverkin ef ykkur er mál. Fasistar.

Afhverju eru íbúar Þorlákshafnar svona heppnir??

Er Gunnar Birgisson Birgisbarn og var hann að róta í bakgarði?


Heilafimi

Þetta finnst mér svo gaman. Ég mun nú koma með í hverji viku fram að kosningum markvissar æfingar fyrir heilann. Þannig að 12.05.07 munum við öll ganga í FYLKINGU og merkja SAMAN rétt. Andaðu nú rólega í 10 sek áður en þú ýtir á þetta..........
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Sjúklegt samband

Ég gæti alveg hugsað mér að kjósa vinstri græna eða sjálfstæðisflokk ef ekkert annað væri í boði, því aldrei myndi ég skila auðu eða mæta ekki á kjörstað. Ung stúlka spurði mig fyrir síðustu bæjarstjórnakossningar, hvað mætti kjósa oft. Henni fannst það eðlilegt eins og í idol-inu. Ef það mætti kjósa tvisvar myndi ég aldrei kjósa þessa flokka saman, það er sjúkt.

Mér fannst samt skemmtilegt að sjá Ögmund vinstri grænan algjörlega úr karakter í Silfrinu. Hann var lúmskur, brosandi og biðjandi Illuga um að flengja sig. Þetta samband vinstri grænna og sjálfstæðisflokks gæti orðið mikið framfara spor fyrir BDSM menningu íslendinga. Gott væri reyndar fyrir flokksforingjana að kynna sér samtökin áður en riðið er úr hlaði.

Það er reyndar ótrúlega margt líkt með sjálfstæðisflokk og vinsri grænum, enda ekki skrýtið því báðir flokkanir íhaldsflokkar þó annar sé lengst til vinstri og hinn lengst til hægri.

Tökum dæmi

1. Hvorugur flokkana vill heyra á það minnst að íhuga evrópusambands-aðild, það má bara ekki tala um það.

2. Ögmundur vinstri grænn sagði í viðtali að gott væri að losna við stóru fyritækin úr landi til að auka jöfnuð, félagi hans Árni Matt hjá sjálfstæðismönnum tók undir orð hans í síðustu viku og sagði að ekkert væri að því þó Straumur burðarás myndi yfirgefa klakann.

3. Fylgismenn flokkana eru mjög húsbóndahollir, það er aldrei einhver innan flokkana sem hefur aðrar skoðanir en foringjar flokkana.

4. Björn Bjarnason er búinn að vera með leyniþjónustu í maganum í nokkur ár, Steingrímur joð kom fram með hugmynd um netlöggu fyrir nokkrum dögum síðan. Sólveig á pappalöggur og löggubúningar fást í öllum helstu hjálpartækjabúðum landsins.

 

 

 

Svo að endingu legg ég það til að öll ummerki um tilvist framsóknaflokksins verði afmáð úr samfélagi þjóðanna.


ekki sama séra Saddam og....

Já það er ekki sama hver er. Hér  neitaði forseti Líbýu, Muammar Gaddafi að eiga gjöreiðingavopn og þess vegna finnst bandaríkjastjórn tilvalið að hjálpa þeim að gera kjarnorkuver. Að sjálfsögðu verður það eingöngu notað til rafmagnsframleiðslu.

Afhverju varð allt brjálað þegar N-kóreumenn voru að framleiða rafmagn með kjarnorku?

Afhverju var ekki hlustað á Saddam Hussen þegar hann sagðist ekki eiga gjöreiðingavopn?

Ég veit að ég fæ ekki svör hér á síðunni þar sem Saddam er farinn á vit feðra sinna, enda er ég bara að velta þessu upp.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband