Færsluflokkur: Bloggar
12.3.2007 | 13:52
Morgunblaðið í sókn
Fyrir nokkrum dögum síðan koma það í minn hlut að tuska mogga-fólkið til. Þau hafa aðeins verið í ruglinu, en eru nú á hraðri uppleið. Verð ég nú að hrósa þeim sérstakleg fyrir góð efnistök og vandaðan fréttaflutning. Þetta (á bls 8 í mogganum 12.03.07 ) sýnir hvað blaðamenn moggans eru í raun vandað fólk. Sýnir næmni þeirra og að enn er til fólk með fréttanef.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.3.2007 | 22:26
...en afhverju má það ekki ?
Agla rústaði þessu þriðja árið í röð, sjá frétt .
....en afhverju má það ekki, ef henni finnst hún hafa erindi í keppnina ár eftir ár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.3.2007 | 14:31
Hvenær er maðurinn fæddur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.3.2007 | 02:32
Silfur Egils
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.3.2007 | 18:06
Tilraun 3
Ég held að allar bestu hugmyndir mannkyns hafið komið óvart til vísindamannsins. Þannig er það um þessa tilraun, hún er ekki fullkláruð, en ég er búinn að reyna allar hugsanlegar útilokunaraðferðir og með sanni má segja að læknavísindin verði ekki söm á eftir.
Fyrir viku síðan sagði félagi minn mér frá háfjallaveiki ég helt fyrst að hann væri að tala um lofthræðslu, sem engin þekkir betur en ég, en svo var ekki, háfjallaveiki lýsir sér þannig að ef þú ert að klifra á mjög há fjöll ca 4000 metra + þá þornar þú upp og færð niðurgang. Daginn eftir er ég lagstur í rúmið, sennilega með háfjallaveiki og það skrýtna var að ég hafði aldrei á æfinni komið uppá svo stórt fjall.
Nú var ég komin á sporið. Ég gerði tilraun á bróður mínum, hringdi nokkra daga í röð og spurði hvort hann væri með kvef, á fjórða degi jánkaði hann því.
Því má með einföldum hætti álykta að sjúkdómar geti smitast með röddinni einni saman og hlakkar mér nú til að heyra viðbrögð læknavísindanna við þessari tímamóta uppfinningu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
10.3.2007 | 14:54
Til þín Ómar
Ómar Ragnarsson, er það að stofna stjórnmálaflokk og skýra hann íslandsflokkinn ekki svipað og að fara út í ómengaða náttúru íslands og reisa stærstu virkjun í evrópu?
Mér finnst ekki nógu mikið jafnvægi í nafni flokksins og í hugmyndum þínum um að koma fram að virðingu við náttúruna og nánasta umhverfi okkar.
Annars líst mér, við fyrstu sín ágætlega á þetta framboð hjá ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.3.2007 | 01:58
"svolítið spes kjóll"
Er ekki komin tími á að konur hætti að gagnrýna aðrar konur fyrir klæðaburð sinn. Þetta er varaþingmaður sjálfstæðisflokksins, orðin þetta gömul og en að hugsa um hvort einhver hafi verið í "svolítið spes" kjól með svona "grænu á"
Hvað ætli þingmaður sjálfstæðisflokksins sé að meina, verða sumir bara alltaf svona á meðan aðrir hætta í kringum 12 ára aldur að gagnrýna klæðaburð annara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.3.2007 | 21:06
Hver var í starfsþjálfun
Alveg frábær þessi tími þegar grunnskólakrakkanir koma inní fyritæki í starfsþjálfun. Nú er sá tími greinilega runninn upp. Morgunblaðið hefur verið að færast nær nútímanum á undanförnum misserum og er það því í takt við nýja stefnu blaðsins að láta einhvern ungling skrifa leiðara dagsins í dag.
" og hefur Geir Harde því staðist sína fyrstu raun í frumvarpi um stjórnarskrána"
Jahá var það ?
og svo var það Gulli í Fellaskóla sem fékk að spreyta sig á forsíðunni: "Jón, Guðni og Jón stóðu þétt saman gegn Sif " hvaða vitleysa er þetta?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.3.2007 | 00:30
Gjaldeyrishöft íhaldsins
Björgólfur Thor sagði orðrétt á fundi í dag "Ísland er fyrsta lýðræðisríkið á þessari öld sem setur gjaldeyrishöft....... á sama tíma dreymir mönnum um að setja á stofn alþjóðlega fjármálamiðstöð" Björgólfur talaði líka um að fara með Straum -Burðarás til Englands eða Írlands.
Geir Harde kom í kvöldfréttir ruv áðan, reyndi að halda cool-inu, en tókst ekki fyrir óöryggi í röddinni.
"Hann.... ræður því...... hvar hann........ hefur sín.. fyritæki.......... skrásett ......"öööö......Geir ertu að róa Davíð eða ertu að reyna fá Ögmund vinstri grænan með þér heim af ballinu. Þetta er ekki trúverðugt Geir. Hlusta hér
p.s. Færslan fyrir neðan var sett inn í skjóli þess að feminista félagið Bríet er að halda sinn árlega baráttufund ....ég gleymdi að hugsa til þess þegar þau koma blindfull heim á eftir og hrauna yfir færsluna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.3.2007 | 23:32
Klámið selur
Það er alveg á hreinu að ég ætla að fara að dæmi Guðbjargar Hildar Kolbeinsdóttur á morgun og skrifa erótískar / klámlýsingar í bloggið mitt. Það eru 8000 manns búnir að lesa bloggið hennar í dag. Er hún þar með komin í hóp vinsæla bloggara.
Áttaþúsund, það eru bara þrettánþúsund búnir að lesa hana frá upphafi. Það er margsannað að klámið selur og er Guðbjörg búin að gera lýðnum það ljóst á baráttudegi kvenna.
ps
Guðbjörg mundu að borða bananan þinn þversum á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)