Færsluflokkur: Bloggar
13.5.2007 | 23:30
Tákn í náttúrunni
Eftir uppljóstrun mína um Framsóknarflokkinn og skemmdaverk hans, hafa fjölmargir hringt í mig og líst yfir ánægju sinni, með opinskáa umræðu mína um tákn í náttúrunni og í umhverfi okkar. Mjög þarft mál og loksins er kominn fram á sjónarsviðið einhver sem þorir að tala um þessa hluti....hefur fólk sagt.
Flestir sem í mig hringdu sjá Maríu mey út úr malarnámu Ingólfsfjalls. Einn tók svo djúpt í árin að hann bað fyrir góðri kveðju til kirkjunarmanna sem að malarnámunum standa, þeim ber að þakka sagði hann. Einn sem hringdi sagðist alltaf sjá skýra birtingarmynd af klæði Jesús í jakkafötum Steingríms Joð. Annar sem hringdi sagðist ekki geta séð annað en reðurtákn út úr afleggjaranum að Gróttuvita. Ég held reyndar að sá aðili eigi bara bágt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.5.2007 | 00:11
Munum að kjósa rétt
Hrikalega stór dagur á morgun, gaman þegar maður er búinn að vera vinna að einhverju verkefni í nokkra mánuði og svo er stóri dagurinn að renna upp. Síðasta kynningin hjá okkur var eðlilega í dag, vorum að dreifa rósum ofl. Spennan magnast á milli klukkustunda þegar aðeins eru nokkrir tímar í stóru stundina. Ég hef í alvöru trú á að meirihluti Íslendinga kjósi okkur. Ég hef bara fundið svo ótrúlega mikla sveiflu með okkur. 12. mai er dagurinn. Munum bara öll.....vote for Moldovía.....ég sé um dansatriðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
11.5.2007 | 10:31
XB
Mínútu eftir að ég vaknaði í morgun, vissi ég nákvæmlega hvernig þeim þúsundum manna, sem á hverju ári sjá tákn að handan líður. Ég byrja daginn alltaf á því að opna svalahurðina og pissa út. Núna í morgun er ég horfði yfir landareign mín frá austri til vesturs, sá ég hvar í grasi mínu grænu var tákn. Þarna var og er eins og meðfylgjandi mynd sýnir táknmyndin XB. Samkvæmt Magnúsi Skarphéðinssyni hafa aðeins örfáir menn séð þessa táknmynd.
Það varð mér til happs að ég var nýbyrjaður að pissa og komst ekki í símann til að skrá mig í framsóknarflokkinn. Ég hafði því smá tíma til að taka sönsum frá eigin hugsun.
Eftir smá rökræður við mig, komst ég að því að þetta eru skemmdaverk Framsóknarmanna og það er þeim líkt. Eyðileggja allt grænt. Vissulega get ég að einhverju leiti kennt sjálfum mér um, það á ekki að vera mitt hlutverk að segja hvernig Framsóknarmenn eru. En nú er ég hættur, þið fáið frí frá mér. Nú hef ég ákveðið að gagnrýna Framsókn ekkert fram að kosningum og athuga hvort fósturjörðin mín sleppur við fleiri skemmdaverk. En eftir kosningar, þá.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
10.5.2007 | 22:23
ekkert stopp
Mikið var ég hissa að sjá útikamar fyrir utan Framsóknarskrifstofuna á Selfossi, ég hélt þeir drulluðu bara upp á bak.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
10.5.2007 | 00:50
BíBí
Svona gaurum er nú ekki einu sinni treystandi til að reka Pizzustað.
Miðað við markhópinn sem við höfðum í huga var ekkert óeðlilegt að auglýsa í Lögbirtingablaðinu," segir Björn. Spurður hví ekki hafi verið auglýst á vefsíðunni starfatorg.is sem fjármálaráðuneytið hefur umsjón með og geymir upplýsingar um laus störf hjá ríkinu, segir Björn, að í þessu tilviki hafi einmitt verið farið eftir þeirri reglu frá fjármálaráðuneytinu, að auglýsa laust embætti í Lögbirtingablaði. Starfatorgið dugi ekki til að auglýsa embætti.
Embættinu skylt að nota Lögbirtingablað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
9.5.2007 | 23:44
Áfram ábyrgð
Ekki það að ég vilji eitthvað sérstaklega líta upp til Bandaríkjanna, en það er skemmtileg tilviljun að stýrivextir voru 5,3% þegar ríkisstjórn Sjálfstæðismanna og Framsóknar tók við. Núna eru stýrivextir rúmlega 14% og hefur Davíð Oddsson hækkað þá 18 sinnum síðan 2004.
Svo segja þessir gaurar bara, "áfram ábyrga efnahagsstjórn" þetta segja þeir í þeirri von að við nennum ekki að kynna okkur málinn. Hér er langt frá því að vera allt í lagi.
Þetta skil ég:
Það er gott að lækka skatta á fyritæki, því þá verða skattaskilin betri og fyritækin geta vaxið.
Þetta skil ég ekki:
Það er óábyrgt að læka skatta (hækka frítekjumarkið) á láglaunafólkið.
Þetta skil ég:
Það er gott að borga mönnum í ábyrgðarstöðum góð laun.
Þetta skil ég ekki:
Það er óábyrgt að hækka laun kennara og starfsfólk í heilbrigðisgeiranum.
Jammm...það er bara ekki hægt að skilja allt.
Stýrivextir óbreyttir í Bandaríkjunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.5.2007 | 21:38
....og hvað svo
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.5.2007 | 00:19
Akureyringar
Jahá þeim er ekki margt til lista lagt, fólkinu sem býr á Akureyri. Ég heyrði í Bylgjufréttum að innfæddum fannst þeir spila heldur hátt á nikkuna........ ekki ætla ég að rengja það. Eitt skil ég reyndar ekki............ afhverju tóku heimamenn ekki bara harmonikkunar og skáru á belginn, sneru Rúmenana niður og fylltu vit þeirra af sojasósu....þeir hefðu skilið það.
Átta rúmenskir harmonikkuleikarar sendir suður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
8.5.2007 | 23:48
Ég krafðist þess að tvöfalda
Á síðasta ári fór ég á afar merkilegan fund um tvöföldun Suðurlandsvegar. Þessi fundur var haldin á Hótel Örk og var ekki ómerkari maður en Árni Johnsen sem hélt fundinn. Ástæðan fyrir því að ég fór á fundinn var fyrst og fremst áhugi minn á tvöföldun vegarins, ekki að ég væri svag fyrir Árna Johnsen.
Ég átti von á mikið af Sjálfstæðismönnum í Örkinni á haustdögum síðasta árs og var undir það búinn að svara fyrir veru minni á þessum stað. Ekki mættu margir Sjálfstæðismenn og var ég hissa á því. . Fundarstjóri var Þór Sigfússon frá Sjóvá og var erindi sem hann flutti virkilega spennandi. Hann var með hugmyndir um að gera veginn í einkaframkvæmd og var ég að mörgu leiti sammála honum
Tvöföldun Suðurlandsvegar hefur verið baráttumál Samfylkingarinar í Suðurkjördæmi um nokkuð langt skeið. Björgvin G Sigurðsson hefur skrifað nokkrar greinar um þetta mál og fyrir tæpum tveimur árum skrifaði ég meira að segja grein, maðurinn sem varla nennir að lyfta penna. Sú grein heitir Sænskir sveitavegir en varð nú reyndar ekki sú tímamótagrein sem ég hélt hún yrði............en á meðan ég er að skrifa þetta læðist að mér sá grunur að kannski hafi hún verið það, sennilega var þetta tímamótagrein sem fór inn í Fréttablaðið á sýnum tíma og breytti þvermóðsku einhverja Sjálfstæðismanna. Því Árni Matt sem var mikið á móti þessum vegi fyrir greinarskrif mín, hefur nú mildast í afstöðu sinni gegn tvöföldun. Reyndar skulum við virða Árna Matt það til vorkunnar að meira að segja Kjartan Óla vildi ekki flytja tillögu með þingmönnum Samfylkingarinnar um 2+2 veg og var hann þó þingmaður úr Suðurkjördæmi.
Árni Matt er nú, ef ég fer rétt með búinn að stoppa Sturlu með sinn 2+1 sænska-sveitaveg og er orðinn sammála mér um 2+2 veg og er það vel. En aðalástæðan fyrir skrifum mínum er að ég átti eftir að þakka Árna Johnsen og Þór Siffa fyrir virkilega góðan fund, þakka ber það sem vel er gert.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.5.2007 | 09:27
Guðni í sérverkefnum
Hér er Guðni að fikta með atómsprengju, en þetta er hluti af nýsköpunarverkefni Framsóknarflokksins "uppbygging í Írak, ekkert stopp". Ef vel er gáð er hægt að sjá á myndinni að hver taug hans er þanin vitneskju um að auknabliks kæruleysi getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar
"miðtaugakerfið hans virðist ekki þola meira rask en lóusöng" sagði dr Aðalsteinn Þorbergsson sem hélt utan um verkefnið.
Þessi þrjú sem standa hjá í viðbragðsstöðu eru allt starfsmenn heilbrigðiskerfissins, tilbúin að grípa inní ef illa færi......en þess má geta að þau þrjú eru öll í fullkomnu jafnvægi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)