Færsluflokkur: Bloggar
6.5.2007 | 01:38
flökkumenn
Sunnlendingar hafa hent gaman að því þegar flökkumenn koma í sveitina og fara á milli bæja. En það hafði ekki gerst um nokkurt skeið, fyrr en nú fyrir stuttu að hingað kom flökkumaðurinn nokkur að nafni Árni Mattisen og var með gamansögur, vísnasöng og steppdans, en fékk að launum að borða á sveitabæjum. Var eftir því tekið að hann blandaði vatni í gosið sitt, helti mjólk á ísinn sinn og muldi smákökur á skyrið. Einnig var haft orð á því að hann væri flóttalegur til augnana, eins og tamt er um flökkumenn. Þegar Árni var spurður um ferðir sínar og hvert ferð væri heitið, snéri hann útúr fyrir verðandi sveitungum sínum og svaraði leyfðu mér að komast að, tölunar eru vitlausar...gúgulígú Þótt mönnum þetta mjög fyndið í fyrstu og kölluðu hann Árni-gúgú, honum til mikilar ánægju.
Svo er snjó tók að létta og Árni var orðin allmikil byrði á bændum og ekkert farasnið virtist á honum fóru þeir að veita breytri hegðun hans athygli. Árni Matt hegðaði sér eins og nafni hans Árni heitinn Johnsen sem hafði flakkað um sunnlensk héruð alla sína tíð, en hann var nú búið að hlekkja niður.
Árni heitin Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum en kenndi sig ávalt við Þykkvabæjinn, eins og eitt hans frægast ljóð vísar í þegar ég var pínulítill patti, var mamma vön að rugga mér í vöggu, í þeim gömlu, kartöflugörðunum heima. Það var í miðjum Þykkvabænum, svona einn komma sjö kílómetra frá sænum þarna rifjar Árni, á tregafullan hátt upp æsku sína, kærleiksríkt samband við móður sína og þá djúpstæðu virðingu sem skáldið hefur fyrir fósturmold sinni.
Ekki var nóg með að flökkumaðurinn sagðist heita Árni og vera SEN, en ekki son, heldur var hann orðin mjög svo önugur. Hann gerði orðið lítin greinarmun á sannleika og skröksögum sínum. Uppá það síðasta sagðist Árni Matt hvergi annars staðar vilja búa en í Þykkvabænum (sjá hér) og gerðist síðan svo óforskammaður að segjast eiga lögheimilli á óíbúðarhæfu býli, til þess eins að fá ölmusu frá sveitinni. Nú er þetta að sjálfsögðu ólöglegt, eins og segir í 1. grein laga um lögheimilli frá 1991 (sjá hér) og eru sveitungar hans ekki á eitt kosta sáttir með þennan mann sem virðist hafa verið sendur úr Hafnafirði. Aðeins hefur borið á þeirri sögu að Árnanir séu einn og sami maðurinn, en ætla ég ekki leggja trúnað á það nema fá að sannreyna það fyrst og mun næsta tilraun mín snúast um það. Það er samt ótrúleg tilviljun hvað margt er eins með þeim kumpánum og fóstbræðrum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
4.5.2007 | 12:24
Landlæknisembættið
Mér brá nokkuð í brún er ég opnaði spurningalistan frá Landlæknisembættinu sem ég fekk í pósti áðan. Þetta er listinn sem ég fæ um hver mánaðarmót, eins og aðrir nýtir þegnar þessa lands. Þarna voru að venju spurningarnar eins og: Stríðir þú dýum? Finnst þér notalegt að róla? og Hlærðu þegar þú ferð í kollhnís?
Nú var búið að bæta við spurningunnum: Ertu með marblett? og Ætlar þú ekki að kjósa sjálfstæðisflokkinn?
Já þið verðið að afsaka en ég skil ekki hvernig þessi næstseinasta spurning getur átt samleið með hinum.........Ertu með marblett???
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
3.5.2007 | 10:48
Götunafnanefnd
Eitt af vandamálunum sem fylgir því að borgir stækka er að finna götunöfn. Þegar Selfoss stækkaði var sótt hugmynd til Reykjarvíkur um að gera Hólahverfi. Fyrsta árið voru gerðar þrjár götur og þær skírðar Álfhólar, Tröllhólar og Dverghólar. Mér kom ekki dúr á auga næstu nætur eftir að ég sá hvað götunar myndu heita.
Sko það eru til dvergar............ en tröll og álfar eru bara í þjóðsögum.....þarf alltaf að vera gera grín af einhverjum? Hverju áttum við von á næst rauðhausahólum, átti að halda áfram að niðurlægja minnihlutahópa?
En ég má ekkert aumt sjá og sendi götu-nafna-nefnd bréf og fór fram á að nafninu yrði breytt á þeim forsendum að dvergar væru til, en ekki tröll og álfar. Ég fékk bréf til baka og ég beðin um að sanna tilvist dverga. Ég fór með dverg niður á bæjarskrifstofu og bað þá um að sanna tilvist álfa. Eitthvað fát kom á nefndarmenn og var humm-að í dágóða stund. Dvergurinn er en til skoðunar hjá nefndinni og götunar heita enn sínum nöfnum.
Fékk svo viku seinna mynd af fjármálaráðherra, en geri mér ekki fullkomna grein fyrir hvernig hann tengist þessu máli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
1.5.2007 | 22:35
Óli og Sísi
Dóttir mín er að læra að lesa. Hún byrjar í skóla í haust og er núna að lesa um Óla og Sísi. Hún hikaði aðeins við "Sísi sá ís" fannst furðulegt að sjá ís án þess að borða hann.
Sonur minn, sem búinn er að læra lesa fyrir nokkru síðan fannst skiptingin fyndin hjá þeim Óla og Sísí "Óli á síma og úr" cool, "Sísi á ól og ás" furðulegt........hei krakkar ég á ás!! ...áttu ás?....ok förum þá að leika með hann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
30.4.2007 | 23:51
framsókn
Mikið hefur nú verið tjúttað við þetta lag í mínum vinahóp í gegnum tíðina. Þarna eru framsóknarmenn í s-inu sínu, sól og samba. Þetta er nú eitthvað annað en ósköpin sem voru send mér í pósti í dag. Já þið sem ekki búið í suðurkjördæmi, þakkið guði.......já eða ódýru húsnæði á Neskaupstað.
Var búinn að lofa þessu lagi. Var líka búin að lofa málverkasýningu hingað inn, hún kemur bráðum.......... Slakið aðeins á !!!
Bloggar | Breytt 1.5.2007 kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
29.4.2007 | 22:11
Hversu langt er hægt að fara?
Mér finnst alltaf gaman að heyra Gunnar í krossinum staðfesta tilvist guðs með sinni sannfæringu og vitna í biblíuna. Trú hans er svo mikil, að alla gagnrýni vantar hjá honum og sér hann ekki að það er kjarni málsins, að yfirleitt trúir sá sem hann deilir við, ekki á biblíuna. Það er því hálf marklaust að segja "Það stendur í hinni heilögu ritningu, svo lítið þýðir að deila um það, félagi" og halda að sigur andans sé innan seilingar.
Gunnar í krossinum má nú eiga það að hann vitnar þó í biblíuna máli sínu til stuðnings. Nú hefur einn trúarhópur gengið skrefi lengra og vitnar óhræddur í fyrri trúarjátningar sínar, máli sínu til stuðnings.
"En þar að auki hljóta að verða uppi spurningar um hversu traustur samstarfsaðili Samfylkingin væri. Hér í Reykjavíkurbréfi hefur því verið haldið fram á undanförnum vikum, að í forystusveit Samfylkingar logi allt í illdeilum. Kjarni þeirra deilna eru auðvitað átökin á milli Ingibjargar Sólrúnar og Össurar Skarphéðinssonar. Það er barnaskapur að halda að þeim sé lokið. Fari kosningarnar á þann veg, sem kannanir benda til, getur Össur Skarphéðinsson sagt með rökum, að formannsskiptin í flokknum hafi verið mikil mistök."
Þetta er náttúrulega ekki í lagi. Þarna er morgunblaðið að vitna í morgunblaðið, máli sínu til stuðnings.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
28.4.2007 | 21:35
So....
Þarna sá ég verkstjórann koma á harða hlaupum með skrúfjárn í annari hendi og high five í hinni.......ég hörfaði aðeins, í óvissu minni um hvora höndina hann ætlaði að nota. Hann smelti high-five á mig, því Pálmi Gunnars var komin upp fyrir mig á blogg-vinsældalistanum. Ok...... hann borgar mér laun svo ég sleppti því að fletja út á honum nefið, með hægri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
28.4.2007 | 19:37
gasoline
Hringdi í félaga minn áðan á meðan ég var að keyra, var sektaður fyrir það um daginn...en læt ekki segjast....ég held enn að ég geti talað í síma og keyrt. Vinur minn hafði lítið að segja eins og vanalega......en hrökk svo í gír þegar ég sagði honum frá Tony´s County skemmtistaðnum. Hann skellti á mig limru í gegnum ítalskan gervihnött og svona er hún:
Vindur, vindur...voða mikið....blæs á mig
Kindur, kindur......með síðuspikið....hvæs´ á mig
...hún er mjög góð spondant..............en á meðan á þessu stóð, dældi ég bensíni á dísel bílinn minn, borgaði það samviskusamlega og talaði í símann allan tímann. Skellti svo á, hringdi í viðgerðakallinn og lét draga mig í burtu. Segið svo að karlmenn geti ekki gert tvennt í einu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
28.4.2007 | 17:15
Hef séð þetta áður...
Ekki virkar þetta ennþá? Nei ég held ekki....fylgið aðeins farið niður hjá þeim....en Samfó í suðri var í 34.9% er það sanngjarnt? Erfit að segja, þarf að spyrja mér eldri menn. En samt, það hlýtur að vera ásætanlegt að vera í 34.9% samkvæmt Gallup tveimur vikum fyrir kosningar. Það eru þó tvær vikur til að bæta við fylgið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.4.2007 | 23:20
Allt fram til glötunar
Ekki hefur verið um neitt annað rætt undanfarið en hvernig Elly tók toppsætið af Sigmari. Hún gerði það í nettum Kristján-heiti-ég-Ólafsson stíl, klúrin á köflum en samt aldrei klámfengin. Hún hefur fetað þessa hárfínu erótík-línu af einskæri kvennlegri næmni. Oft hefur mér fundist hún fara yfir strikið, en viðmælendur mínir eru mér aldrei sammála og ætla ég að virða þeirra sjónarmið því flestir eru þeir yngri en ég. Þessi leið á toppin hefur í aldana rás verið umdeild, en ekki skal ég dæma fyrir aðra hvort hún sé rétt eða röng. Ég héfi í skrifum mínum reynt að gæta hófs og ekki tekið afgerandi skoðanir á viðkvæmum málum. Mun ég halda því áfram þrátt fyrir að sum skrifin hér séu fyrir neðan allar hellur.
Mér fannst það meira en dálítið sjokkerandi þegar ég sá að sú vandaða kona Ólína Þorvarðardóttir ætlar að detta í þann fúla pitt sem erótíkin allt leiðir. Nú er hún farin að skrifa á sömu nótum og Elly hefur gert til að fullnægja sinni hégómagirnd. Ég einfaldlega treysti mér ekki til að lesa lengra, en fyrirsögnina hjá Ólínu. Hún hljóðar svona "þau náðu mér á náttkjólnum" og held ég að lesendur geti verið mér sammála um að þessi saga leiðir lesendur í heim hennar viltustu drauma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)