Færsluflokkur: Bloggar
27.4.2007 | 19:11
Sögur frá Kárahnjúkum.
Ég hef verið að heyra sögur af hrikalegum aðbúnaði starfsmanna þarna. Öll hreinlætisaðstaða ömuleg ofl ef þið vitið um einhvern sem hefur verið að vinna þarna eða ef þið hafið sjálf frá einhverju misjöfnu að segja, þá megið þið endilega mail-a á mig.
Netfangið er tomastho@simnet.is með fyrirfram þökk, Tómas.
Landlæknir ætlar austur að Kárahnjúkum eftir helgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.4.2007 | 17:20
Tony´s County
Ok.....ég skil ekki alveg þessa frétt...............staðurinn heitir "Tony´s County" og er ekki í Harlem hverfi í New York, heldur er hann staðsettur mitt á milli Hveragerði og Selfoss. Þeir er ótrúlega bjartsýnir.....þangað á engin eftir að koma, nokkurn tíma. En jæja ímyndum okkur að þangað myndi einhver koma í kvöld í voða stuði, hann væri t.d. svona dansfífl......sem alltaf er til í snúning, en nei nei þá tæki á móti honum hjúkrunarfræðingur (sjá mynd með frétt) ..................og hann verður með 3 kg af skyri....sem dansfíflið þyrfti að borða.....áður en hann fer að dansa. Ég er ekki að segja að það sé eitthvað að því að borða 3 kg af skyri, en að þurfa dansa eftir það er ekki gaman.
En gaman að segja frá því, án þess að það komi málinu eitthvað við........bara fyrst við erum að tala um þetta.................þá borðaði ég einmitt sex svona 500 gr peru-skyrdósir í hádeginu, sem er jú nákvæmlega 3 kg af skyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.4.2007 | 12:59
Takk, takk.
Ég er meira en minna búinn að dorma uppí rúmi síðan snemma í morgun. Hvað líf manns getur breyst mikið við eina frétt og hvað áður yfirspenntur líkami minn, er nú allt að því yfirþyrmandi slakur. Ég er í einhverskonar alfa-beta-móki og sé fram á, að þurfa ekki að sofa aftur í læstri hliðarlegu eins og allt síðasta ár.
Nú er hún Valgerður búinn að tryggja varnir Íslands..........já hún er góð kona hún Valgerður utanríkiskona. Öryggi mitt er tryggt, þökk sé dönum, norðmönnum og Valgerði. Sniðugt hjá henni að velja ekki enskumælandi þjóðir......enskan er mjög ofmetin. ....
Skrifað undir samkomulag við Norðmenn um varnarmál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
25.4.2007 | 22:32
bls 10 í mogganum
Mikið ofsalega var ég hissa, er ég nývaknaður fletti á bls 10 í hinu virta og vandaða blaði, morgunblaðinu. Þar var þriggja dálksentimetra mynd af mér með texta undir. Ég frussaði út úr mér morgunmatnum á morgunblaði og fann fyrir svimatilfinningu, áður en ég gat klipið mig í handlegginn í óljósri von um að vakna ekki. Nei ekki var þetta draumur, þarna var ég í minni mynd.
En hún var skammvin gleðin sem tók við af svimatilfinningunni............. Hver setti þetta í morgunblaðið og hvernig vissi hann að ég var búinn að skrifa þetta? Ég let hugan reika og það er í svona vímu sem allar bestu uppgötvanir heims hafa orðið til. Ég veit það liggur ekki í augum uppi, hvernig þetta komst í morgunblaðið, en á þessu er til einföld skýring.
Það er nefnileg maður sem vinnur við að lesa blogg á morgunblaðinu!! Ætli hann sé aldrei einmanna í vinnunni.........hvernig vinnufötum ætli hann sé látinn ganga í ? Eitt sumar vann ég við að afgreiða ís í sjoppu og ég var látinn vera í ljósbláum bol, sem allir pössuðu í nema ég. Svo var sett á mig húfa.........með vasa.... og það var alltaf að koma fólk inní sjoppuna sem var að reyna hlæja ekki.........þá finnst mér nú betra að hlæja bara að manni. En blogglestrahestamaðurinn er örugglega í töff gallabuxum með svona smekk.....sem maður smellir yfir og svo veit hann örugglega allt um stjórnmál og hverjir eru vinir á blogginu og svona.
Ætli honum hafi aldrei langað að stelast til að svara einhverjum. Sigmar ertu allsber og svo búið......svo veit engin hvernig þetta kom inn.
En rosalega héld ég hann hafi verið fúll þegar Styrmir mail-aði á hann þú tekur að þér Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt er það ekki?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
25.4.2007 | 14:08
Elly ofaná.......
Er að leita að gaur sem ég var að svara í gær. Fór á vinsældarlistann og sá þar að Elly Ármanns er kominn uppfyrir Sigmar sem er búinn að sitja á toppi listans síðan elstu menn muna. Nú skora ég á Sigmar að segja nokkrar kynlífssögur af félögum sínum og sjá hvort hann nái ekki Elly undir sig..........jamm
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
24.4.2007 | 23:19
Loksins sátt
Ég er engin sérfræðingur um framsókn og veit því ekki við hverja þeir voru að sættast. En af svipnum á Jóni að dæma gæti hann alveg stofnað til rifrildis, einn í herbergi. Þannig að gott er að hann náði sátt við sjálfan sig í umhverfismálum, nú er þetta stríð búið .............
Hér er upplýsingafulltrúi framsókn með betra skjal um sáttina miklu. Það var eitt sem ég ekki skildi....það var þetta:
Geysir - jarðhiti Geysir er friðlýstur. Skoðað í 2. áfanga Rammaáætlunar
Ég veit lítið sem ekkert um þetta mál....en eru þeir að hugsa um þetta í 2. áfanga ?? og í framhaldinu fór ég að velta fyrir mér Gullfoss, afhverju er hann ekki þarna. Já finnst ykkur skrýtið að maður sé varkár, þegar kemur að ykkur framsóknarmenn??
Framsóknarflokkurinn kynnir sáttatillagu í virknanamálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
24.4.2007 | 10:49
Var ekki nóg að láta mig hætta að reykja?
Af einhverjum ástæðum missti ég af fréttablaðinu á laugardaginn síðasta, en sá það fyrir tilviljun í morgun. Þar á forsíðu er frétt um að Þorgrímur Þráinsson sé að skrifa "sjálfshjálpar" bók hann er búinn að finna titil á hana "Hvernig á að gera konuna þína hamingjusama"
Þorgrímur. Ef ég einhverntíman eignast konu, þá frábið ég mér því að þú gerir hana hamingjusama.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
23.4.2007 | 23:52
Sko Arsenal eru bestir
Ég vona að drottningin útnefni Arsenal englandsmeistara 2007.
Drottningin heldur með Arsenal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.4.2007 | 16:25
Gott afmæli
Frænka mín bauð mér í fertugs afmæli sitt á laugardagskvöldið. Ég mætti í seinni kantinum og pakkalaus, enda nýbúin að gefa syni hennar fermingjagjöf. Fannst samt leiðinlegt að vera ekki með pakka.......en það er ekki hægt að gera bara það sem manni finnst skemmtilegt. Ég beið aðeins á bílaplaninu fyrir utan félagsheimilið, það er eitthvað svo augljóst þegar maður kemur pakkalaus einn. En ég þurfti nú ekki að bíða lengi, dreif mig inn í humátt á eftir hressum ættingjum ofan af Skaga. Frænka var alveg upptekin við að knúsa langt-síðan-við-höfum-sést ættingja og tók því ekki eftir mínum tveimur lausu höndum. En þegar röðin kom að mér opnaði ég lófan rólega í átt að borðinu og sagði með minni dimmu og alþýðlegu rödd til hamingju með daginn
Ég var settur á borð með fullafrænda, hann býður alltaf uppá drykkjukeppni ef einhverju á að fagna. Ef einhver heldur ræðu byrjar hann að kalla úr að ofan...úr að ofan og ég er eini sem hlæ.
Á sama borði var líka einhver gaur sem ég hafði aldrei séð, örugglega vinnufélagi frænku, en hann var svona rauð-sveittur tölvu gúró. Ég tók eftir því, að þegar hann þambaði bjórinn horfði hann alltaf til hliðar, framhjá glasinu. Hef ekki séð þetta áður, en virkaði ekki vel. Virkaði eins og hann hefði eitthvað að óttast. Skoðaði í kringum mig og sá að almennt horfir fólk á bjórinn þegar það drekkur. Ein stelpa reyndar lokaði augunum, ég hélt það héfði verið óvart og sagði því skál við hana og hún lokaði aftur augunum og drakk. Ótrúlegt hvað hægt er að stjórna fólki með Skál
Prófaði mig áfram og á ca klukkutíma var ég búin að fylla mágkonu mína af Skaganum, hún ældi á píanóið í einhverji eurovision-stellingu. Því ákvað ég að fylla ekki fleirra fólk og hætti að skála. Saumaklúbbs-matarborðið var tómt, engin lengur viðræðuhæfur og því komin tími á að drífa sig heim. Tók með mér sellófón-pakkaða-rauðvín-frá-Chile í nesti og aðgangseyri að eftirpartý. Fann ekkert eftirpartý og leigubílsstjórinn var þögull sem gröfin. Heima fann ég óskrifað blað sem ég ritaði á konan og hafið en það er titill á ósömdu ljóði mínu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
23.4.2007 | 11:36
Gallup fellur, en mbl lafir.
Ef eitthvað er að marka þessa skoðanakönnun um að sjálfstæðisflokkur fái 55.5% í eyjum, er ég að verða sannfærður um að eyjamenn vilji láta koma svona fram við sig. Sjálfstæðismenn hafa ekkert gert í samgöngumálum til eyja síðustu 16 ár og myndi maður ætla að samgöngur væru aðalmálið í Vestmannaeyjum. Þær einar geta stoppað fólksfækkun, sem hefur verið 100 manns á ári síðustu 10 árin. Ég skil bara ekki hvað veldur því að rúmlega annar hver eyjamaður vill kjósa þennan flokk.
Það er svo rosalega hátt fallið hjá framsókn um land allt að engin minnist á að flokkurinn er að fara úr 23.7% í 14.2% í suðurkjördæmi, miðað við þessa könnun. Reyndar þeim til varnar verður að minnast á að könnun þessi hefur fengið mikla og réttmæta gagnrýni. Það segir sig sjálft að ef einn flokkur er tekin út og um hann spurt sérstaklega, þá fær hann hærra skor.
Samfylking mælist með 24% í þessari könnun, sem er nokkuð nærri því sem hún hefur verið að mælast með. Félagsvísindastofnun mældi Samfylkingu með 28% svo það mætti með sanni segja að flokkurinn sé á réttri leið og verði að öllum líkindum komin yfir 30% eftir þrjár vikur.
Vinstri grænir koma ágætlega út úr þessari könnun, auka fylgi sitt frá síðustu kosningum en eru ekki að mælast eins háir og í síðustu könnunum.
Svo er alltaf spurning hvort taka eigi mark á svona kjánkönnunum þar sem hið fyrrum virta fyritæki gallup legst svo lágt að spyrja óákveðna hvort þeir væru til í að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Þetta er auðvitað fáránlegt að vera með svona skoðanamyndandi kannanir. Það kemur engum á óvart að mogginn skuli taka þátt í þessari vitleysu, þeir eru viðurkennt málsgagn Sjálfstæðisflokksins.
D-listi með 55,5% fylgi í Eyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)