Færsluflokkur: Bloggar
21.4.2007 | 21:36
Mosó
Það er aðeins furðulegt að sjá hlakka í fulltrúa VG yfir því að ekki sé fjölmenni á fundi umhverfisverndarsamtaka. En sumt verður svo skrítið í pólitík. Reyndar væri ég alveg til í að heyra frá Karli þegar mæta yfir 60 manns á fund hjá VG næst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.4.2007 | 15:54
Mín vörn
Nú hafa nokkrir undirmáls-samfélagshópar hótað mér. Hótaninar eru mismiklar, allt frá því að menn hafi kennt uppá mig rasista gagnvart framsóknar-Jóni og uppí það að menn hóta að leita mig uppi (sjá hér) einn vildi meira að segja siga feministum á mig.................sem er spark undir beltisstað. En rasisti er ég ekki og skal ég útskýra það hér. Ef þú ímyndar þér Jón sem þeldökkan mann að greiða skegg sitt og ef þú lest ummæli mín í því samhengi, þá sjá allir að ekki er um kynþáttahatur að ræða.
Þess vegna héf ég ákveðið að taka þessum hótunum eins og Valgerður tók hótunum um að henni skyldi drekkt. Nú mega þessir götustrákar eiga von á fógetanum með handtökuskipun. En auðvitað á ég eitthvað af þessu inni, mikið af þessu á ég reyndar skilið. En samt mun ég kæra eins og Valgerður.
Fyrir ykkur sem sjáið hvað ég er mikið fól að hlæja að mönnum sem greiða skegg sitt og líka þeim sem þora ekki að fight-a konur, ætla ég að fá að nota þessa mynd af mér til varnar mínum súríalisku skoðunum. Ég er vinstra megin á myndinni.............. svo var ég rosalega hissa á að eiga ekki kærustu á þessum árum. (Sjá mynd)
Svo þegar ég fór að skoða þessa mynd betur af okkur Stebba, sá ég að bak við okkur hangir ljósmynd af manni sem er sennilega í sinni stellingu. En samt óþarfi að setja hana uppá vegg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.4.2007 | 13:29
Furðulegt
Jáhá nú eru þeir rosalega hissa framsóknarmenn, en ef vídeó-ið sem fylgir er skoðað vel, skýrist ýmislegt. Þegar liðnar eru 1 min og 40 sek kemur formaðurinn í mynd og hvað skildi honum detta í hug að gera? Skoðið þetta og kjósið framsókn !!
![]() |
Guðni: Sjálfstæðisflokkurinn virðist stikkfrí í umræðunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
19.4.2007 | 22:11
Vertu aðeins meira töff
Sko Jón Viktor, það gleymdist aðeins að ala þig upp. Heldur þú að það sé töff að ná stórmeistaratitli með því að semja um úrslitin? Juventus var dæmt niður um deild fyrir það sama og þeir eru meira að segja fótboltagaurar, ekki skáknördar. Það er ekki töff eða stórmeistaralegt að semja um úrslitin................. og hvað þá að SEMJA VIÐ STELPU.
Var þér farið að hlakka til að mæta í vinnuna á morgun og segja hinum að þú sért "stórmeistari" ha ?? Hélstu kannski að yfirmaðurinn myndi láta klappa fyrir þér í seinna kaffinu? Nei það verður bara hlegið að þér á kaffistofunni á morgun. Þorðir ekki að keppa við stelpu nananananana.
![]() |
Jón Viktor náði fyrsta áfanga að stórmeistaratitli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
19.4.2007 | 12:36
Efnistök
Fréttamaðurinn geðþekki Magnús Hlynur sem oft hefur verið nefndur : Sjónvarps-fréttamaðurinn með andlit fyrir útvarp og rödd fyrir dagblað er nú um þessar mundir ritstjóri vikublaðsins Dagskráin, sem gefin er út á Selfossi. Þetta blað hefur undanfarið vakið mikla kátínu í Árnessýslu allri fyrir furðuleg efnistök. Nær undantekningalaust eru fréttir af blómum og trjám á forsíðunni. Hedlænsin þessa viku eru Hrafnshreiður í háspennumastri við Flóaveg og Sex fundarhlé en seinni fyrisögnin vísar ekki í dulinn klámskilaboð eins og mætti halda. Sjá Blaðið hér
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.4.2007 | 23:22
göng
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.4.2007 | 12:45
Nýtt lag
Heitir það ekki sjóræningjaútgáfa þegar maður rænir lagi og birtir á netinu, áður en það er gefið út. Neðst á síðunni minni er lag sem að Gummi Steingríms og Marshall-inn eru búnir að eiga við. Góð pæling um sætu stelpuna.
Stimplið ykkur út, náið í börnin ykkar á leikskólann og spilið lagið fyrir þau, aftur og aftur.
Til hamingju með daginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.4.2007 | 01:43
Martröð
Get ekki sofnað, ligg bara andvaka. Ef ég reyni að loka augunum heyri ég "ekkert stopp" og sé mynd af Jóni Sig framsóknar-meinjak í litlu kaffistofunni að hakka í sig rækjusamlokur. Af svipnum að dæma er hann örugglega búinn með sjö lokur............ ekkert stopp Jón.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
17.4.2007 | 08:44
N1
Eitthvað vaknaði ég nú öfugsnúinn í morgun, allt buggles-ið búið svo ég fór svangur í sturtu. Eg var nú snöggur að taka gleði mína á ný, frá kvöldinu áður, þegar ég kom fram í forstofu. Því í bréfalúguna var kominn vandaður bæklingur frá nýstofnuðu fyritæki sem heitir N1. Mikið af frábæru lesefni í þessum vandaða bæklingu frá þessu nýstofnaða, kraftmikla fyritæki. Já þetta lofar góðu, þeir ætla að selja olíu í samkeppni við gömlu olíufélöginn og óska ég þessu glæsilega fyritæki farsældar. Vill ég jafnframt hvetja landsmenn til að versla þar því ekki stendur á tilboðunum.Þar er t.d. á bls 7 tilboð sem samanstendur af tveimur kortum og er gefið 1 kr í afslátt og svo tveir punktar. Svo er 1% afsláttur af matvöru í formi punkta. Svo er greiðslulykill og yfirlit á netinu.
Já það er ekki af þeim skafið hjá N1.
Samt leið mér aðeins eins og ég hafi vaknað upp árið 1936, það er verið að bjóða mér fock-ings 1 kr í afslátt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
16.4.2007 | 21:40
Halastjarnan nálgast !!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)