Færsluflokkur: Bloggar
16.4.2007 | 18:10
Ferming
Mér var boðið í fermingarveislu hjá frænda mínum um helgina, þáði það með þökkum, þrátt fyrir tíma- og peningaleysið. Sá í kirkjunni að hann var kominn yfir 180 cm á hæð og sá eini sem var með skegg. Ég þorði ekki að skamma pabba hans fyrir að raka hann ekki fyrir athöfn, veit reyndar að feðganir lesa bloggið og vonandi kunna þeir að skammast sín. Sá líka að hann var ófríðasta fermingarbarnið. Þessvegna hætti ég við að gefa honum dönsk-íslensku orðabókina sem mamma hans gaf mér í fermingjargjöf og var óopnuð.
Brunaði heim, strax að lokinni kirkju og náði í fermingarmynd af mér til að gefa honum. Náði að peppa frænda upp, sýndi honum að ég hefði nú verið svona ljótur á fermingardaginn en væri í dag eins og módel frá París. Á fermingarmyndinni minni er ég með alltof stórt nef, kinnbeinin búinn að stækka og með varir eins og Pamela Andersson, en augun alltof lítil. Mamma sagði réttilega að á myndinni héfði ég verið eins og blanda af Kjartani Gunnarssyni fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins og fóstri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
16.4.2007 | 13:11
Þið þurfið ekkert að óttast....
Aðeins hefur borið á misskilningi meðal andstæðinga Samfylkingarinar að þegar hún tekur við, verði hér ekkert gert og þjóðarskútunni siglt á kaf. En það get ég fullvissað ykkur um að verður ekki gert.
Samfylkingin ætlar að fresta, já aðeins fresta álversuppbyggingu og gera heilstæða áætlun um hvar eigi að virkja og fyrir hvað. Svo eftir ca 3-5 ár þegar búið verður að gera áætlun þá er kannski tímabært að gera fleirri álver eða ekki, heldur gera eitthvað annað. Eitthvað annað þarf ekki endilega að vera jurtate framleiðsla eða ganga um á sauðskinsskóm. Í okkar hraða heimi getur gerst alveg ótrúlega mikið á aðeins 3 árum. En þið þurfið ekki að vera hrædd um að þurfa að ganga í sauðskinsskóm og drekka bara jurtate.
Á meðan Samfylkingin frestar álversuppbyggingu ætlar hún að setja kraft í samgöngubætur og það mun skila auknum hagvexti. Þannig að það verður mjúk lending eins og Davíð Oddsson bað um. Já við komum fram við alla að virðingu, sama af hvaða sauðarhúsi þeir koma.
Já og svo ætlar Samfylkingin að nota tímann, á meðan engar virkjanir verða til að taka heilbrigðiskerfið til endurskoðunar. Jafnaðarmönnum finnst ekki að biðlistar í aðgerðir eigi að vera lögmál, ekki frekar en biðlisti í 6 ára bekk. Það myndi enginn sætta sig við biðlista í grunnskóla, afhverju þarf það að vera lögmál að það sé biðlisti í hjartaþræðingu. Það sjá allir sem vilja sjá að það er þjóðhagslega óhagkvæmt að taka fólk úr umferð og setja á biðlista, það skapast ekki hagvöxtur á meðan, svo við lítum nú bara kalt á málið.
Þegar Samfylkingin verður búin að taka við mun hún stuðla að velferðarsamfélagi, með frelsi einstaklingsins í fyrirrúm. Samfylkingin veit að það er hægt að gera samfélag þar sem hagvöxtur er í hávegum hafður og jafnframt verður engin einstaklingur skilin útundan. Þetta er bara spurning um að þora. Þora að breyta, til að bæta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.4.2007 | 23:44
Fréttaskýring eftir landsfund.
Hátt í 2000 manns voru á landsfundi sjallana um helgina, sögðu mér fróðir menn. Telja menn að Geir Hilmar Harde sé ekki par ánægður með að hafa bara fengið 906 atkvæði í kosningu til formanns. Rétt rúmlega helmingur fundarmanna virðist hafi kosið hann. "Voru þetta skilaboð frá flokksmönnum" spurði eldri sjálfstæðismaður í suðurkjördæmi mig. Kannski var hinn helmingur fundarmanna að styðja yfirlýsingu Davíðs Oddssonar sem ekki sá sér fært að mæta á fundinn vegna anna í seðlabankanum þessa helgi.
Nokkuð ljóst má vera að Sjálfstæðisflokkurinn skiptist í tvær ákveðnar fylkingar og væntalega er ekki langt að bíða uppgjörs á því heimilli.
Heimildarmenn mínir telja afar varasamt fyrir hina flokkana að fara í ríkisstjórn með svo brothættum flokki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
15.4.2007 | 22:45
Davíð veit
Sennilega er þetta rétt sem Davíð Oddsson sagði þegar kvennaathvarfið og hjálparstofnun kirkjunnar voru að benda á að alltaf þyrftu fleirri og fleirri á aðstoð að halda yfir hátíðinar. En Davíð sagði eftirminnilega "Þar sem er ókeypis matur, þar er röð"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.4.2007 | 20:07
dj
Hvert er hlutverk gaursins sem stendur alltaf hjá dj-inum* ? Hallar sér svona yfir hann. Ætli hann sé einhverskonar verndari hans ?
*diskótekari. En ef þú þurftir að nota þessa útskýringu, þá ertu í eldri kantinum, sem sagt dj er nútíma diskótekari og er töff.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
14.4.2007 | 17:41
sjallar á línunni
Eftir fréttatilkynningu mína fyrr í dag hafa nokkrir sjálfstæðimenn hringt í mig og ekki sagt farir sínar sléttar af flokksfundinum. Einn sagðist ekki skilja hvert flokkurinn væri að fara, hvað eiga menn við með ókeypis fyrir vistvæna bíla er dísel-inn minn vistvænn eða þarf hann að ganga fyrir rafmagni ? þetta er eitthvað svo stefnulaust sagði hann.
Kona í efri þrepum þjóðfélagsins sagði að skömm væri af því að menn skuli stinga hausnum í sand í heilbrigðismálum.Svo hringdi í mig sjálfstæðismaður sem er innanbúðarmaður í borgarkerfinu og sagði að þar væri allt uppí loft. Villi góði hefði gjörsamlega brjálast þegar samstarfsmenn hans kynntu flugvöll á Hólmsheiði því landsfundur flokksins væri með allt aðra ályktun á málinu.
Já nokkuð ljóst má vera að innan Sjálfstæðisflokksins er mikil undiralda og verður fróðlegt að sjá hvort Geir nær að stíga hana, eða hvort styttra sé í einvígi Guðlaugs og Þorgerðar en nokkur hefði trúað þegar Geir tók við.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
14.4.2007 | 15:06
snilld
Tölvukennsla miðalda
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.4.2007 | 10:29
Laugardagsfréttaskýring
Landsfundur sjálfstæðismanna stendur nú yfir í Laugardalshöll. Fundurinn var settur með pompi og prakt á fimmtudag.Fundarmenn voru sammála um að setningarhátíðin hefði verið glæsileg. Virkilega góð hún Diddú og hefur sennilega aldri verið betri.
Eins eru fundarmenn sammála um að allur aðbúnaður í höllinni væri til fyrirmyndar.
Heimildarmaður minn á landsfundinum var samt hálf daufur í dálkinn. Sagði að menn væru skúffaðir yfir því að Davíð Oddsson kæmi ekki á landsfundinn. Menn í hinni nýju stuttbuxnadeild væru sannfærðir, að um afdráttarlausa yfirlýsingu væri að ræða hjá honum. Ekki er hann að naga blýanta hvíslaði einhver. En eins og ljóst er, hefur Davíð ítrekað ávítt forsætisráðherrann fyrir glannalega efnahagsstjórn og Geir virt að vettungi aðvaranir seðlabankastjórans.
Menn tóku mis mikið mark á nýju skoðanakönnunni þar sem fylgið var á niðurleið. Landsbyggðarfulltrúanir vildu meina að fylgistapið væri ekki Árnunum í suðurkjördæmi að kenna og Guðlaugs-fylkinginn sagði af og frá að kenna ætti getuleysi Geirs um það.
Já...það sér hver sjálfan sig með það sagði heimildarmaður minn í lok samtalsins, aðeins betri eftir að hafa fengið að romsa upp úr sér. Eftir þennan morgunfund, er nokkuð ljóst að ástandið í flokknum er eins slæmt og almenningur hefur sagt undanfarna daga. Má ljóst vera að ef samband Geirs og Davíðs ekki batnar gæti illa farið fyrir flokknum í kosningum þann 12. mai.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.4.2007 | 23:48
ég er ekki femmi
Ég er ekki feministi. Ég er jafnaðarmaður. Ég er ekki sammála kynjakvótum. Ég skil samt alveg fólk sem vill kynjakvóta, er orðið þreytt á ójafnrétti í þjóðfélaginu. Ég held bara að aðrar leiðir séu betri. Ég á mun fleirri stelpur en stráka. Ég vill öllum mínum börnum alveg jafn vel.
Mér var boðið á landsfund Samfylkingarinar í dag, að sjálfsögðu tók ég því. Mér fannst mjög gaman þegar þrír foringjar jafnaðarmanna á norðurlöndunum stóðu uppá sviði, allar stór glæsilegar og klárar konur. Það að vera með ca 1400 manns á svona fundi og allir með sama markmiðið er ótrúlega góð tilfinning. En þegar þær stóðu þarna og ræddu um hvernig þjóðfélag þær vildu fá, gerðist eitthvað hjá mér. Ég vill í hjarta mínu að Ingibjörg Sólrún verði forsætisráðherra vegna þess að ég treysti henni best og líka vegna þess að hún er kona. Já, því hún er kona. Ég vill samt ekki kynjakvóta og ég er ekki femmi. Ég vona að þið skiljið hvað ég meina. Ég vill að dætur mínar geti líka átt sér fyrimynd í stjórnmálamanni. Þess vegna vill ég að hún verði forsætisráðherra, vegna þess að hún er kona og vegna þess að hún hefur skýrustu myndina um jöfnuð og frelsi einstaklingsins.
![]() |
Það þarf konu til að koma jafnaðarmannastjórn að völdum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
13.4.2007 | 15:52
Frelsið
Það er eiginlega alveg stórmerkilegt að hvergi er menn betur undirbúnir til að tala um pólitík en næstum allsnaktir í pottum landsins. Hvað ætli geri það að verkum að menn opni sig ekki fyrr en þeir eru komnir í speedo sundskýlur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)