Færsluflokkur: Bloggar
12.4.2007 | 23:09
mótandi
Stundum héf ég spáð í orsök og afleiðingu, fæstir íslendingar gera sér grein fyrir því, að hveri orsök fylgir afleiðing . Ég átti yndisleg unglingsár á Selfossi. Fór í gegnum break- og Pálma-Gunnars-tímabil á forunglingsárunum, eins og flestir unglingar gera enn í dag. Þegar ég var 12-13 ára fannst mér töff að syngja ástin er eins og sinueldur, ástin er segulstál og óhræddur gekk ég inní stofu 11 í gagnfræðaskólanum og lærði að break-a. Kennarinn var Siggi Break, hann var fínn, þó ég hafi ekki náð tökum á þyrlunni, held það skrifist frekar á kjarkleysi mitt en lélega kennslu. Ormurinn og moon-walk voru eins og sniðin fyrir mig, fékk að liðast áfram í einhverskonar sýruvímu.
En ég þroskaðist nú upp úr þessari vitleysu og tók ekki þátt í þeirri róttæku hugmynd nokkura Selfyssinga að krefjast þess að Í.S.Í beitti sér fyrir því að breakdans yrði viðurkennd keppnisgrein á ólympíu-leikum.Þegar ég var orðinn 14-16 ára og hættur að dansa,( því sá sem kann að break-a fer ekki niður á það súra plan, að dansa aðra dansa ) reyndi ég að fá krakkana í skólanum til að tala á bekkjarkvöldum og á fimmtudagsdiskói, ekki bara horfa útí loftið og dansa eins og kjánar. Það tókst ekki vel, en í eðlilegu framhald á þessum kvöldum eignaðist ég leiðtoga lífs míns. Ég vissi að svona vildi ég vera, ég hlustaði á allt sem hann hafði að segja. Ég reyndi að læra allar hans hreyfingar og á gaggó-árunum var hver einasta hreyfing mín út hugsuð. Hver hreyfing eins og hjá honum. Ég man þegar stelpa sem ég var skotin í sagði að ég væri svo líkur honum. Ég man ekki alveg hvort það var áður en ég fór að einbeita mér að lærðri hegðun hans, eða eftir á. En það er ótrúlega margt sem þessi maður hefur afrekað. Þetta er maðurinn sem fann upp hringskegg, svona eins og allir dyraverðir ganga með á sér í dag. Þetta er maðurinn sem mótaði mig áður en hann fékk sér hringskegg. Læriföður minn. Þessi maður var alltaf tilbúinn að gefa af sér, fyrir mig. Ég var nú svo heppinn áðan að finna lítið myndbrot með honum á netinu. Skoðið hér.
En svo bregðast krosstré sem önnur tré. Hann kom út úr skápnum á sóðalegu klósetti í almenningsgarði í L.A. Eins og það hefði ekki verið nóg, þá heyrði ég viðtal við Pál Óskar þar sem hann sagði þeir sem ekki þetta sáu, eru nú bara í afneitun við þig Páll Óskar vill ég segja: Þú ert nú bara hommi.
Auðvitað hefði ég átt að sjá þetta, hvað er þjónninn með mottuna og rauða klútinn um hálsinn að gera í myndbandinu?
Enn í dag fer ég ekki öðruvísi í sturtu en að setja hendur á hnakka og hreyfi axlinar rólega. Svört sólgleraugu eru staðalbúnaður hjá mér í sundi. En eitt hef ég aldrei heyrt almennilega. Hvað segir hann í restina (cool) (foul) eða bara svona típískt hljómsveita (úúúúúúu )
Atferlissálfræðingurinn minn sagði að auðvitað væri þetta töff að takast á við og ég yrði að fara aftur til for-unglingsárana. Svo nú er ég bara sauðslakur að fara setja kókosbollu á almenningssímann á bensínstöðinni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.4.2007 | 19:00
Fréttaskýring
Hún var æpandi í tómleika sínum sú staðreynd að Davíð Oddsson ætlaði sér ekki að mæta á landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Tveir sjálfstæðismenn hafa haft samband við mig, annar lýsti yfir öryggisleysi flokksmanna, menn væru ráfandi um eins og fé á leið úr réttum í sláturhús á meðan strákar úr stuttbuxnadeildinni væru hlaupandi um svæðið geltandi.
Hinn sagðist vera lystarlaus og með beinverki, hringdi reyndar til að biðja mig að ná í sig "þetta væri eitthvað svo skrítið" sagði hann
Þegar ég keyrði hann heim, sagði hann að það hefði mikið verið skrafað um það í byrjun fundar að Davíð væri að mótmæla því að Geir hefði fengið Árna Johnsen inn á þing aftur. Það hefði Davíð aldrei leyft.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
12.4.2007 | 16:24
Bolti, bjór og tjellingar
Jahá þetta grunaði mig.
![]() |
Fótbolti eykur frjósemi í Þýskalandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.4.2007 | 23:40
Ekki bara pólitík.
Hann var nokkuð góður þátturinn frá Selfossi í dag, þar sem efstu menn framboðana í Suðurkjördæmi tókust á. Margir bloggarar eru búnir að tjá sig um þáttinn og flestir sammála um að Björgvin hafi verið bestur, mæli með þessari síðu.
Það er alltaf gaman þegar einhver linkar á mann, helst vill maður borga í sama. Stundum er það þannig að maður finnur aldrei tækifæri til að gera það. En núna þurfti ég ekki að bíða nema í sólahring. Þá var Heiða búinn að skrifa það sem ég hugsa .toppið það skrifið þið núna hvað ég er að hugsa!!!
En aftur að þættinum, það voru nokkur atrið sem ég skildi ekki.
Guðni var alltaf gólandi þetta eru sósilistar mér skildist á málrómnum (sem er nú alltaf keimlíkur málrómi hans sjálfs) að hann væri að hræða kjósendur. En Guðni kjósendur eru hræddastir við framsókn.
Atli vg varð eins og kría á svipinn þegar hann var spurður hvernig ríkisstjórn hann vildi.
Ásta Islandshreyfingaflokkur veifaði sjálfri sér til að undirstrika að hún væri kona. Hver verður fyrst kvenna til að veifa brjóstunum til að sýna að hún sé kona?
Menn innan Sjálfstæðisflokksins velta því nú fyrir sér afhverju þeir mælast ekki hærri í suðri. Þeir mælast með svipað fylgi og í síðustu kosningum, en þá var klofningsframboð sem tók nokkur hundruð atkvæði og var því kennt um lítið fylgi. Nú skilst mér að þeir leiti sér nær.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
11.4.2007 | 10:14
Frændur okkar danir
Já þeir eru hressir á því frændur okkar danir. Þeir eru bara eitthvað svo lieglad. Ofboðslega gott að vera í danmörku, minnir mig alltaf á Noreg.
![]() |
Dani fundinn sekur um að hvetja til hryðjuverka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.4.2007 | 23:17
Fletcher bestur !
Hey nördar, hættið að hringja í mig og segja mér að man-utd hafi unnið 7-1, mér er alveg sama. Það er ekki eins og ég haldi með Róma. Samt töff AIG merkið á búningnum ykkar.
Samt eitt, afhverju stoppar gamalt fólk alltaf í hurðinni ? Takið eftir þessu næst þegar þið labbið á eftir 80 ára manni, þegar kemur að hurð þá stoppar hann og skoðar nýja rýmið sem býður hans. Svooooo..... fer hann inn um hurðina.
![]() |
Alex Ferguson: Besti Evrópuleikurinn undir minni stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.4.2007 | 14:32
Tilraun nr 4
Vegna færslu minnar í gær um ungar konur, er rétt að láta ykkur vita að hún var uppspuni. Ég var einungis að gera tilraun á mismunandi lesendahópum. Ellý Ármanns var með sömu hálvita pælingar um daginn gagnvart strákum. Hún fekk næstum engin viðbrögð, þrátt fyrir að vera með eina af mest lesnu síðum í blogginu. Eg fekk mikil viðbrögð þrátt fyrir að vera lesinn fjórum sinnum minna en Ellý. Þetta segir okkur að lesendahópur minn er greindari, meðvitaðari, næmnari og að öllu leiti betra fólk. Aðstoðarmaður minn fékk líka í sínum niðurstöðum, að minn lesendahópur væri fallegri. Ég á reyndar eftir að fá nánari útskýringu á þeim hluta tilraunarinnar.
En hér kemur það sem Ellý sagði:
"Hvorki nefhár, eyrnahár, andremma, getuleysi né of stór kærleiksvöðvi*," svaraði góð vinkona mín þegar hún útskýrði fyrir mér af hverju í ósköpunum hún ákvað að trúlofast manni sem er tólf árum yngri en hún. Umrædd vinkona er ein af mörgum sem vilja ólmar fá unga íslenska menn inn á listann. "Komdu með tillögu!" sagði ég og beið eftir að hún kæmi með eitthvað virkilega bitastætt. Hún byrjaði að telja upp nokkra unga fola eins og hún kallar þá. Fyrstan nefndi hún Eið Smára, Halfdán hennar Völu Matt, Sveppa, söngvarann í Jeff who?, Audda, Færeyinginn í Xfactor, rauðhærða fréttamanninn með gleraugun á Stöð 2 og þar með var hennar folalisti tæmdur. Spurning hvað stelpurnar segja á morgun...
* Kærleiksvöðvi = maginn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.4.2007 | 19:11
Sjálfstæðiseftirhernur
Hvað segja sjálfstæðisstrákanir núna ? Eru þetta ekki góð eftirlíking af ályktun Samfylkingarinar í Fagra Ísland ? Við skulum samt ekki gleyma að fagna breyttum áherslum hjá sjálfstæðismönnum, það er þroskamerki þegar menn geta breytt rétt. Það sem Samfylking segir í Fagra Ísland er feitletrað og það sem Sjálfstæðisflokkur ályktar núna, er skáletrað:
Að ákvörðunum um frekari stóriðjuframkvæmdir verði frestað þangað til fyrir liggur nauðsynleg heildarsýn yfir verðmæt náttúrusvæði Íslands og verndun þeirra hefur verið tryggð.
Í drögum að ályktun um iðnaðarmál segir, að vegna þenslu sé æskilegt að hægja á ferðinni í virkjunarmálum og nauðsynlegt að klára rammaáætlun um virkjunarkosti sem fyrst.
Merkilega líkt !!
![]() |
Sjálfstæðisflokkur stefnir að frekari skattalækkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
9.4.2007 | 12:37
Yngri kona
Kunningi minn sem er búinn að vera á lausu í nokkur ár var að byrja með stelpu sem er 12 árum yngri en hann. Ég kváði aðeins er ég heyrði þetta, en hann sagði að þetta væri mjög mikill munur.
Nú væri hann með konu sem væri alltaf til í sex-ið, hún væri ekki með auka hár á líkamanum, hann þyrfti ekki að óttast andfýlu frá henni og hann væri laus við breiðar mjaðmir í rúminu sínu.
Ég gat nú lítið sagt við þessu og jánkaði bara með honum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
8.4.2007 | 23:42
Páskaegg.
Jæja þá er ég búinn að borða átta páskaegg í dag og bara nokkuð góður í maganum, en loksins er ég orðinn sáttur við málsháttinn sem ég fekk " þeir sem ráða, mega ganga til náða"
Samt finnst mér páskaegg ekkert sérstaklega góð, fyrsta er gott en hin ekki eins góð, þannig að meðaltalið er ekkert sérstakt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)