Leiðsögn út í lífið.

 

Ég er nú bara eins og aðrir íslendingar með það, að ég hef óskaplega gaman að ljóðum og vísum.  Allur kveð-skapur er mér að skapi ef svo mætti komast að orði.  Frá því ég var ungur strákur hefur kveðskapur alltaf verið mitt helsta áhugamál og má með réttu segja að vísur, ljóð, kvæði og limbrur hafi mótað mitt líf.  Alltaf kemur kveðskapur mér jafn mikið á óvart og nær undantekningalaust hlæ ég dátt við að heyra nýtt kvæði.  

Eitt form á kveðskap hefur þó verið eins og rauður þráður í gegnum mitt líf, en það eru úrfellingakvæði og hef ég lagt nokkur slík á minnið.  Gríp ég ávalt og ber þau fyrir mig ef erfiðar aðstæður koma upp í mínu lífi og er það með ólíkindum hvað fólk hrífst með þeim sem kvæði kunna.

Uppáhalds úrfellingarkvæði mitt er Úllen dúlen doff og er það svona: Úllen dúllen doff, kikki lani koff, koffi lani, bikki bani, úllen dúllen doff.

Svo ég nefni nú dæmi, máli mínu til stuðnings.  Þá fór ég í bíó um daginn og þegar röðin var komin að mér að kaupa bíómiða kom smá fát á mig.......en þá greip ég í uppáhalds úrfellingarkvæðið mitt og tók þá á móti mér fliss, rjóðar kinnar og hugfangin glampi í augum afgreiðslustúlkunnar.  Þannig að ég skora á ykkur að leggja þetta úrfellingarkvæði á minnið og hafa til að grípa í.

 


uppgjör

Ég var alveg búinn á sunnudeginum eftir kosningar og get rétt ímyndað mér hvernig frambjóðendur hafi haft það.  Ég var svo þreyttur er ég lá í sófanum í hálfgerðu móki.  Ég rankaði aðeins við mér þegar ég horfði á Kastljós og sá Jón Sigurðsson syngja............ Það fer Jóni einstaklega illa að vera undir þeirri pressu sem kosningabarátta ber með sér, en ég væri til í að gefa helvíti mikið fyrir að fá að horfa á Jón horfa á sjálfan sig syngja í þessum kastljósþætti. 

  

Það er reyndar með ólíkindum að Jón og Framsóknarflokkurinn hafi ekki séð að þeir eru óstarfshæfir í ríkisstjórn.  Framsókn tappaði mjög illa í kosningunum og Geir af góðmennsku sinni, henti þeim ekki burt strax.  Geir hélt að Jón kæmist að þeirri niðurstöðu að dagar þessara stjórnar væri taldir.  Það hefði því verið óþarfi hjá Jóni að láta þetta líta svona illa út, þetta vissu allir nema Jón og þingflokkurinn, ef þing flokk mætti kalla, því erfitt er að kalla sjö manneskjur flokk.

  Núna eru Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur að ræða málinn, stjórn þeirra gæti orði mjög farsæl.  Ekki virðist vera raunhæfur möguleiki fyrir Samfó, Vinstri græn og framsókn að mynda stjórn og tel ég eftirtalin tvö atriði ráða þar mestu um:

1.  Ögmundur kemur með hugmynd um minnihlutastjórn Samfó og VG sem varin yrði af Framsókn.  Maðurinn er auðvitað bara að hrekkja framsókn með svona tillögu.  Hvað ættu framsókn að verja?  Svona stjórn þekkist í nágranalöndunum en þá er það eins máls flokkur sem tekur minnihlutastjórn að sér og fær í staðinn sitt mál í gegn.  Mætti hugsa sér ef Ómar hefði náð inn mönnum þá gæti hann varið slíka stjórn ef ekkert yrði virkjað og allar ákvarðanir teknar með hagsmuni náttúruna að leiðarljósi. 

2.  Steingrímur J gaf Jóni Sig kost á að biðja sig opinberlega afsökunar í kastljósi.  Ef Steingrímur vill að hann biðji sig afsökunar er þá ekki snyrtilegra að tala við Jón undir fjögur augu?  Steingrímur, það á ekki að setja pressu á neinn til að fá afsökunarbeiðni, þegar maður vill bjóða einhverjum að verða betri maður, þá gerir maður það af hógværð. 

Vonum að ný “Upprisustjórn” verði sett saman og reisi velferðarkerfið við.


mbl.is Formlegar stjórnarmyndunarviðræður hefjast væntanlega á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árshátíð í skólanum

Fór á árshátíð skólans í morgun.  Þessi árshátíð var keimlík árshátíð síðasta árs, allt í frekar hefðbundna átt og finnst mér aðallega skortur á ferskleika einkenna alla vinnu barnanna. 

 

Þegar inn í skólann er komið blasir við myndlistarsýning hjá krökkunum.  Var allt yfirbragð málverkana í byrjanda stíl og fannst mér vanta alla heildarmynd á sýninguna.  En þó var ljós í myrkrinu, því virkilega falleg og kómísk mynd í barrok-stíl vakti strax athygli mína og verð ég að fá að þakka Aron Pétri í 5. A.G. fyrir hana. Ekki síður vakti athygli mynd eftir Freyju í 1. H.J.H.  Þar teiknar hún kónguló sem er bleik, en eftir mínum bestu heimildum eru ekki til bleikar kóngulær.  Einnig vill ég benda Sigríði Petru á að sólin er ekki með augu, væri gott ef það yrði lagað og fannst mér líka mikill löstur við myndina, að hún skrifaði ekki nafn sitt sjálf, þarna var greinilega rithönd kennara.

 

Þegar inn í sal var komið tók við allt of löng bið eftir leikriti um Hróa Hött.  Þegar svo leikritið loksins byrjaði, var biðin ekki þess virði.  Aðalleikarinn, sem ég náði nú ekki nafninu á, átti ekki sinn besta dag.  Hann gleymdi í þrígang texta sínum og finnst mér það vera ábyrgðarhluti hjá leikstjóra að benda barninu ekki á, að þetta er ekki hans vegur í lífinu.  Aðrir leikarar sluppu ágætlega frá sínum hlutverkum, að undanskildum rauðhærða stráknum sem lék hestinn hans litla Jóns.  Yfirlæti, látalæti og alltof hástemmt hnegg virkaði ekki sannfærandi á mig.  Leikmyndin var í ódýrari kantinum og var erfitt að greina á milli tímamismun atriða í flestum tilfellum, virtist sagan að mestu öll gerast á einum degi.

 Kórinn sem söng í lokaatriðinu hljómaði ekki vel.  Alla dýft og fyllingu vantaði í “krummi sat í klettagjá” eins fannst mér útsetning á “Lóan er komin” ekki góð, þar er illa farið með annars ágætis lag.Má því með sanni segja að þessi árshátíð hafi ekki verið uppá marga fiskana og var ég hissa á miklu klappi og greinilegt er að metnaðarleysi foreldra og aðstandenda er algjört

framsóknarmaðurinn

PICT0059

Eins og ég greindi frá í síðustu viku var búið að gera táknmyndina XB í blettinn minn með einhverjum óþvera þ.e.a.s. grasið er kalið.  Á kosningadag, þegar ég var eins upptekinn og hugsast getur, var slegið XF í grasið hjá mér.  Ég verð nú að byrja á að spyrja, hvar er nágrenagæslan ??  Sennilega gætu ógæfumenn komið og tekið þakið af hjá mér ef ég væri ekki heima og kannski líka þó ég væri heima.

En ég stóð alveg á gati þegar ég sá XF-ið í garðinum mínum, ég stóð á gati þangað til ég leit yfir í næstu garða.  Ef þið skoðið myndina vel er framsóknarmaðurinn í þarnæsta húsi búinn að slá garðinn sinn og er þetta þar með þriðja árið í röð sem hann nær að vera fyrstur í hverfinu til að slá.

Mikið hlýtur hann að hafa hlegið inní sér þegar hann ákvað að koma sínum flokki að "ekkert helvítis XB í mínum garði, bara XF og svo hefur framsóknarmaðurinn farið á kjörstað og merkt við F-ið. 

Þarna er sennilega kominn skýring á fylgishruni Framsóknarflokksins.  Læsi armur flokksins er að setja X við F.

 


Tákn í náttúrunni

 

Eftir uppljóstrun mína um Framsóknarflokkinn og skemmdaverk hans, hafa fjölmargir hringt í mig og líst yfir ánægju sinni, með opinskáa  umræðu mína um tákn í náttúrunni og í umhverfi okkar.  Mjög þarft mál og loksins er kominn fram á sjónarsviðið einhver sem þorir að tala um þessa hluti....hefur fólk sagt.

  Flestir sem í mig hringdu sjá Maríu mey út úr malarnámu Ingólfsfjalls.  Einn tók svo djúpt í árin að hann bað fyrir góðri kveðju til kirkjunarmanna sem að malarnámunum standa, “þeim ber að þakka” sagði hann.  Einn sem hringdi sagðist alltaf sjá skýra birtingarmynd af klæði Jesús í jakkafötum Steingríms Joð.  Annar sem hringdi sagðist ekki geta séð annað en reðurtákn út úr afleggjaranum að Gróttuvita.  Ég held reyndar að sá aðili eigi bara bágt.  

 


Munum að kjósa rétt

 

Hrikalega stór dagur á morgun, gaman þegar maður er búinn að vera vinna að einhverju verkefni í nokkra mánuði og svo er stóri dagurinn að renna upp.  Síðasta kynningin hjá okkur var eðlilega   í dag, vorum að dreifa rósum ofl.  Spennan magnast á milli klukkustunda þegar aðeins eru nokkrir tímar í stóru stundina.  Ég hef í alvöru trú á að meirihluti Íslendinga kjósi okkur.  Ég hef bara fundið svo ótrúlega mikla sveiflu með okkur.  12. mai er dagurinn.  Munum bara öll.....vote for Moldovía.....ég sé um dansatriðið. 

XB

xB

Mínútu eftir að ég vaknaði í morgun, vissi ég nákvæmlega hvernig þeim þúsundum manna, sem á hverju ári sjá tákn að handan líður.  Ég byrja daginn alltaf á því að opna svalahurðina og pissa út.  Núna í morgun er ég horfði yfir landareign mín frá austri til vesturs, sá ég hvar í grasi mínu grænu var tákn.  Þarna var og er eins og meðfylgjandi mynd sýnir táknmyndin XB.  Samkvæmt Magnúsi Skarphéðinssyni hafa aðeins örfáir menn séð þessa táknmynd. 

  

Það varð mér til happs að ég var nýbyrjaður að pissa og komst ekki í símann til að skrá mig í framsóknarflokkinn.  Ég hafði því smá tíma til að taka sönsum frá eigin hugsun. 

  Eftir smá rökræður við mig, komst ég að því að þetta eru skemmdaverk Framsóknarmanna og það er þeim líkt.  Eyðileggja allt grænt. Vissulega get ég að einhverju leiti kennt sjálfum mér um, það á ekki að vera mitt hlutverk að segja hvernig Framsóknarmenn eru.  En nú er ég hættur, þið fáið frí frá mér.  Nú hef ég ákveðið að gagnrýna Framsókn ekkert fram að kosningum og athuga hvort fósturjörðin mín sleppur við fleiri skemmdaverk.  En eftir kosningar, þá.......

 


ekkert stopp

xbkamar

Mikið var ég hissa að sjá útikamar fyrir utan Framsóknarskrifstofuna á Selfossi, ég hélt þeir drulluðu bara upp á bak.


BíBí

 

Svona gaurum er nú ekki einu sinni treystandi til að reka Pizzustað.

Miðað við markhópinn sem við höfðum í huga var ekkert óeðlilegt að auglýsa í Lögbirtingablaðinu," segir Björn. Spurður hví ekki hafi verið auglýst á vefsíðunni starfatorg.is sem fjármálaráðuneytið hefur umsjón með og geymir upplýsingar um laus störf hjá ríkinu, segir Björn, að í þessu tilviki hafi einmitt verið farið eftir þeirri reglu frá fjármálaráðuneytinu, að auglýsa laust embætti í Lögbirtingablaði. Starfatorgið dugi ekki til að auglýsa embætti.

 


mbl.is Embættinu skylt að nota Lögbirtingablað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram ábyrgð

 

Ekki það að ég vilji eitthvað sérstaklega líta upp til Bandaríkjanna, en það er skemmtileg tilviljun að stýrivextir voru 5,3% þegar ríkisstjórn Sjálfstæðismanna og Framsóknar tók við.  Núna eru stýrivextir rúmlega 14% og hefur Davíð Oddsson hækkað þá 18 sinnum síðan 2004.

Svo segja þessir gaurar bara, "áfram ábyrga efnahagsstjórn" þetta segja þeir í þeirri von að við nennum ekki að kynna okkur málinn.  Hér er langt frá því að vera allt í lagi.

Þetta skil ég:

Það er gott að lækka skatta á fyritæki, því þá verða skattaskilin betri og fyritækin geta vaxið.

Þetta skil ég ekki:

Það er óábyrgt að læka skatta (hækka frítekjumarkið) á láglaunafólkið.

 

Þetta skil ég:

Það er gott að borga mönnum í ábyrgðarstöðum góð laun.

Þetta skil ég ekki:

Það er óábyrgt að hækka laun kennara og starfsfólk í heilbrigðisgeiranum.

Jammm...það er bara ekki hægt að skilja allt.

 


mbl.is Stýrivextir óbreyttir í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband